Alexis Sanchez fær ekkert að vita um framtíð Wenger Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2016 10:00 Alexis Sanchez og Arsene Wenger. Vísir/Getty
Sílemaðurinn Alexis Sanchez hefur átt frábært tímabil með Arsenal og ensku blöðin slá upp fréttum af samningaviðræðum hans við Arsenal. Uppsláttur The Mirror vekur aftur á móti athygli því blaðamenn þar á bæ hafa heimildir fyrir því að forráðamenn Arsenal geti ekki lofað Alexis Sanchez neinu þegar kemur að því hver verði knattspyrnustjóri liðsins. Arsene Wenger hefur verið knattspyrnustjóri Arsenal frá árinu 1996 og mörgum stuðningsmönnum félagsins finnst kominn tími á ferska vinda um stjórastólinn. Samningur franska stjórans rennur út í vor og þrátt fyrir frábæran árangur liðsins undir hans stjórn hefur Arsenal ekki orðið enskur meistari í meira en áratug. Það var almennt talið líklegt að Wenger myndi framlengja um eitt eða tvö ár og sjá svo til. Hann er orðinn 67 ára gamall og hefur verið í þessu starfi í tvo áratugi. Það er hinsvegar ljóst að inn í framtíðarplön Wenger blandast einnig óvissuástand um að Arsenal eigi enn á ný í hættu á að missa frá sér stjörnuleikmenn. Þeir hafa ófáir yfirgefið félagið á síðustu árum til að elta vænlegri tilboð annarsstaðar frá Arsenal er þessi misserin að reyna að semja við bæði Alexis Sanchez og Mesut Özil sem báðir vilja fá væna launhækkun. Það er ljóst að það væri afar slæmt fyrir félagið ef annar þeirra færi hvað þá báðir. Ensku blöðin smjatta á óvissunni og sum eru meira segja á því að Arsene Wenger gæti hreinlega hætt ef félaginu takist ekki að semja við þá Alexis Sanchez og Mesut Özil. Það fer ekkert á milli mála að framtíð þessara þriggja, Wenger, Alexis Sanchez og Mesut Özil, er í uppnámi. Stuðningsmenn Arsenal fylgjast því spenntir með öllum fréttum á næsttunni.Alexis Sanchez og Arsene Wenger.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Sjá meira