Sögulegt draumamark hjá Messi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. júní 2016 09:15
Lionel Messi bætti markamet argentínska landsliðsins með draumamarki í nótt er Argentína valtaði yfir Bandaríkin í undanúrslitum Copa America. Argentínumenn voru með mikla yfirburði í leiknum og unnu stórsigur, 4-0. Veislan byrjaði strax á 3. mínútu er Ezequiel Lavezzi stangaði boltann í netið hjá stressuðum Bandaríkjamönnum eftir sendingu frá Lionel Messi. Á 32. mínútu var komið að sögulegum viðburði. Lionel Messi skoraði þá algjörlega stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu. Landsliðsmark númer 55 hjá honum og Messi því orðinn markahæsti landsliðsmaður Argentínu frá upphafi. Hann var jafn Gabriel Omar Batistuta fyrir leikinn en á metið nú einn. Strax á fimmtu mínútu síðari hálfleiks gerðu Argentínumenn út um leikinn er Gonzalo Higuain skoraði og hann setti síðasta naglann í kistu Bandaríkjamanna með marki eftir undirbúning Messi fjórum mínútum fyrir leikslok. Messi því með draumamark og tvær stoðsendingar í leiknum. Argentína spilar við Kólumbíu eða Síle í úrslitaleiknum en þau mætast á miðnætti í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Mörkin úr leiknum má sjá hér að ofan.Þessi ágæti aðdáandi Messi hljóp inn á völlinn er síðari hálfleikur var að hefjast í nótt. Eins og sjá má ekki með neitt illt í huga. Hann féll fyrir fætur meistarans og faðmaði hann svo í kjölfarið.vísir/afp
Fótbolti Mest lesið Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Enski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn Ferguson fluttur á spítala Enski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Isak aftur meiddur Enski boltinn Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Stjarnan - ÍA | Bæði undir pressu ÍBV - Breiðablik | Hvernig koma Blikar undan þyrluflugi? Ferguson fluttur á spítala Mark Hákons dugði skammt Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Manchester United - Liverpool | Barist um þriðja sætið Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ Espanyol getur gert Barcelona að meisturum á morgun „Erum með montréttinn á Akureyri“ Valgeir sá Schalke fara upp í úrvalsdeild „Gerist eiginlega ekki betra“ Logi fagnaði stórsigri gegn Galatasaray „Ingason sýningin“ í öruggum sigri Brann Bayern og PSG hvíldu sig vel fyrir seinni leikinn Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Lögðu Arsenal og fara í úrslit Meistaradeildarinnar Afar óvænt tap Íslendingaliðsins Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ Sjá meira