Líf eftir Lokeren hjá Leekens Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2016 13:45 Georges Leekens reynir að segja leikmanni Lokeren til. Vísir/Getty
Georges Leekens var látinn fara frá Íslendingaliðinu Lokeren í vikunni og Arnar Þór Viðarsson tók við liðinu. Arnar Þór mun stýra Lokeren tímabundið á meðan leit af nýjum þjálfara stendur yfir. Georges Leekens var hinsvegar ekki lengi atvinnulaus. Hinn 67 ára gamli Belgi er á leiðinni til Alsír þar sem hann mun ganga frá samningi við alsírska knattspyrnusambandið. Leekens verður eftir það landsliðsþjálfari Alsíringa en þetta er ekki fyrsta landsliðið sem hann þjálfar og ekki einu sinni í fyrsta sinn sem hann tekur við landsliði Alsír. Georges Leekens var landsliðsþjálfari Belga frá 1997 til 1999, hann þjálfaði Alsír í stuttan tíma 2003, var með belgíska landsliðið aftur frá 2010 til 2012 og þá tók hann við landsliði Túnis 2014 og þjálfaði það til ársins 2015. Georges Leekens var búinn að vera með Lokeren frá 2015 þegar hann og forráðamenn félagsins komust að samkomulagi um starfslok. Landslið Alsír er eins og er í 35. sæti á Styrkleikalista FIFA en liðið var í fimmtánda sætinu fyrir aðeins tveimur árum síðan. Serbneski þjálfarinn Milovan Rajevac hætti með landslið Alsír eftir aðeins tvo leiki fyrr í þessum mánuði. Hann hafði tekið við af Christian Gourcuff sem hætti í apríl. Georges Leekens verður því þriðji landsliðsþjálfari Alsírs á árinu.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Sjá meira
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti