Rúnar ráðinn þjálfari Lokeren Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2016 15:58 Rúnar Kristinsson heldur áfram að þjálfa erlendis. vísir/stefán
Rúnar Kristinsson hefur verið ráðinn þjálfari belgíska úrvalsdeildarliðsins Lokeren en frá þessu greina belgískir fjölmiðlar. Hann verður kynntur til sögunnar á blaðamannafundi á morgun en félagið á enn eftir að staðfesta ráðningu hans. Rúnar þjálfaði síðast Lilleström í Noregi en hann var rekinn frá norska félaginu í síðasta mánuði eftir erfitt gengi í norsku úrvalsdeildinni. Rúnar þekkir vel til hjá Lokeren líkt og hjá Lilleström en hann spilaði fyrir belgíska liðið og var í miklum metum hjá stuðningsmönnum þess. Á sjö árum hjá Lokeren var Rúnar tvívegis valinn besti leikmaður liðsins. Rúnar tekur við starfinu hjá Lokeren af Georges Leekens sem hætti störfum í vikunni en liðið er í þrettánda sæti belgísku úrvalsdeildarinnar. Lekeens var fyrr í dag ráðinn landsliðsþjálfari Alsír. Aðstoðarþjálfari Lokeren er Arnar Þór Viðarsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður, sem spilaði með Rúnari fyrir íslenska landsliðið. Arnar Þór hefur stýrt æfingum eftir að Lekeens var látinn fara. Rúnar spilaði í sjö ár fyrir Lokeren frá 2000-2007 en Arnar Þór spilaði með honum mest allan tímann hjá félaginu. Lokeren hafnaði í ellefta sæti belgísku úrvalsdeildarinnar í fyrra en það er búið að tapa átta af fyrstu tólf leikjum sínum á yfirstandandi leiktíð. Tveir Íslendingar spila fyrir Lokeren en það eru landsliðsmennirnir Sverrir Ingi Ingason og Ari Freyr Skúlason. Ari Freyr kom til Lokeren eftir Evrópumótið í sumar. Lokeren verður þriðja félagið sem Rúnar þjálfar en hann tók fyrst við uppeldisfélagi sínu KR og gerði það tvívegis að Íslandsmeisturum og þrisvar sinnum að bikarmeisturum frá 2010-2013.
Fótbolti Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Sjá meira