Bandaríkin samþykkja 4,3 billjóna samning um hernaðaraðstoð til Ísraels Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 13. september 2016 23:30 Barack Obama bandaríkjaforseti og Benamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels Vísir/Getty
Bandaríkin hafa samþykkt að veita Ísrael hernaðaraðstoð næstu tíu árin fyrir 38 milljarða bandaríkjadala. Um er að ræða stærsta samning af þessu tagi í sögu Bandaríkjana en upphæðin nemur 4,3 billjónum íslenskra króna. Viðræður hafa staðið yfir í tíu mánuði og er áætlað samningurinn verði undirritaður á morgun. Samningurinn kemur í stað 10 ára áætlunar sem er áætlað að renni út árið 2018. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir þetta stærsta samning um tvíhliða hernaðarlega aðstoð í sögu Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í frétt BBC. Samningurinn felur í sér að Ísrael muni kaupa öll sín hergögn í gegnum BAndaríkin. Auk þess má Ísrael ekki sækja um aukna fjármuni frá bandaríska þinginu. Meðal annars mun Ísrael fá 500 milljónir bandaríjkadala á ári, eða um 57,5 milljarða íslenskra króna, til að verja í flugskeytavarnaráætlun. Talið er að með þessu sé Barack Obama bandaríkjaforseti að reyna að sýna stuðning sinn við Ísrael, en áður hafði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, gefið í skyn að hann myndi bíða eftir eftirmanni Obama í von um betri samning. Samskipti milli Obama og Netanyahu hafa verið stirð síðan í mars árið 2015, þegar sá síðarnefndi hélt tölu á bandaríska þinginu til að tala gegn samningi við Íran sem Obama var þá að reyna að fá samþykktan. Þá er talið að Obama og Netanyahu muni funda í New York í næstu viku á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sjá meira