Vilja aðstoða þolendur kynferðisofbeldis Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 23. apríl 2016 07:00 Bente Stein Mathisen, þingmaður norska hægriflokksins og formaður norrænu velferðarnefndarinnar. Mynd/MagnusFröderberg
Ósk Norðurlandaráðs um stofnun norræns samstarfsnets fyrir fullorðna einstaklinga sem glíma við síðbúnar afleiðingar kynferðisofbeldis hefur hlotið hljómgrunn. „Heilbrigðisyfirvöld huga ekki nógu vel að einstaklingum sem glíma við síðbúnar afleiðingar kynferðisofbeldis. Þetta eru nú einu sinni fimm til tíu prósent allra Norðurlandabúa,“ segir Bente Stein Mathisen, þingmaður norska Hægriflokksins og formaður norrænu velferðarnefndarinnar. En kynferðisofbeldi í barnæsku hefur oft og tíðum alvarlegar og margvíslegar afleiðingar á fullorðinsárum. Stein Mathisen sagðist jafnframt ánægð með að heilbrigðis- og félagsmálaráðherrarnir ætli að ræða við einstaklinga úr hópi sjálfboðaliða sem og opinbera og einkageiranum um að koma á fót norrænu samstarfsneti. Einnig sagði hún samhæfðra aðgerða þörf. „Það vantar samhæfðar aðgerðir á þessu sviði, bæði landsbundnar og alþjóðlegar. Myndun samstarfsnets hefur norrænt notagildi og skilar samlegðaráhrifum milli rannsókna, frumkvöðlastarfs, opinbera geirans og frjálsra félagasamtaka sem gagnast löndunum. Við höfum mörg dæmi um góðan árangur, en það vantar vettvang til að geta skipst á reynslu.“ Auk tilmæla um samstarfsnet með áherslu á fullorðna sem glíma við síðbúnar afleiðingar kynferðislegs ofbeldis beinir Norðurlandaráð einnig tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar um að hún þrói menntunaráætlanir sem sniðnar eru að ólíkum starfsstéttum sem vinna með börn og ungmenni sem orðið hafa fyrir slíku ofbeldi og einnig fullorðna sem glíma við síðbúnar afleiðingar þess. Eins að rannsóknir norrænna stofnana verði efldar til að tryggja að pólitískar ákvarðanir byggi á þekkingu á öllum sviðum meðferðar. Að tekin verði saman skýrsla um Grønlandsmodellen – Rejseholdet þar sem greint verður frá aðdraganda verkefnisins og starfsaðferðum og aðgerðum lýst og að Norræna ráðherranefndin bæti vandanum vegna ofbeldis gagnvart börnum og fullorðnum við verksvið Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar og við gerð áætlunar á heilbrigðis- og félagsmálasviði á Norðurlöndum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. apríl
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Fleiri fréttir Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Sjá meira