Til stendur að meðferðarkjarninn verðir á sex hæðum og að þar verði að finna megnið af þeirri starfsemi spítalans sem snertir sjúklinga beint, til að mynda bráðamóttöku, gjörgæslu og skurðstofur. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hefur kallað meðferðarkjarnann flóknustu og stærstu bygginguna í nýja klasanum sem rísa mun á lóðinni.
Í ávarpi sínu í dag fjallaði Kristján meðal annars um fjárveitingar til spítalans undanfarin ár og vék tali að fimm ára áætluninni, sem kynnt verður á næstu dögum.

Undanfarnir tólf mánuðir hafa verið nokkuð stormasamir á Landspítalanum og fjallaði Kristján Þór meðal annars um verkföll og kjaradeilur á spítalanum og sýknudóm yfir hjúkrunarfræðingi sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi. Þá talaði ráðherrann stuttlega um tillögur sínar að nýju greiðsluþátttökukerfi fyrir notendur heilbrigðisþjónustunnar, sem talsvert hafa verið til umfjöllunar að undanförnu.
Tillögurnar segir Kristján meðal annars miða að því að einfalda núverandi kerfi og vernda þá sem mest þurfa á þjónustunni að halda frá háum útgjöldum.
„Til marks um núverandi flækjustig má nefna að kerfið er samsett úr mörgum tugum mismunandi kerfa, sem enginn hefur yfirsýn yfir, og veldur því að okkar veikasta fólk er illa, og í sumum tilfellum, alls ekki tryggt fyrir veikindum þeirra,“ segir Kristján. „Frumvarp um nýtt greiðsluþátttökukerfi liggur fyrir þingi og ég vona að það verði samþykkt þaðan áður en langt um líður.“