Þurftu að svara spurningum um afdrif peninganna Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. apríl 2016 19:15 Myndirnar af Abdul sem komu #BuyPens herferðinni af stað. myndir/twitter
Íslenskur forritari, búsettur í Noregi, og líbönsk blaðakona hafa í dag þurft að svara hvort þau hafi stungið fjármunum ætluðum flóttamanni í eigin vasa. Framtak Gissurar Símonarsonar, #BuyPens, fangaði athygli margra í fyrra. Með herferðinni hvatti hann fólk til að styrkja sýrslenskan flóttamann. Hugmyndina fékk hann eftir að hann rakst á mynd af manninum þar sem hann stóð úti á götu og reyndi að afla sér fjár með að selja penna.Sjá einnig: Íslenskur forritari hefur safnað sex milljónum fyrir sýrlenskan flóttamann Maðurinn reyndist vera Abdul Halim al-Attar, 33 ára einstæður tveggja barna faðir. Markið var sett á 5.000 dollara en þegar upp var staðist höfðu 191.000 dollarar, andvirði tæplega 24 milljóna króna, safnast. Abdul á nú bakarí og tvo veitingastaði í Damaskus og sextán sýrlenskir flóttamenn starfa hjá honum.1- English subtitles of call between AbdulHalim & @carolmalouf. @Buy_Pens @GissiSim pic.twitter.com/hvFWlORRGz— iad tawil (@iadtawil) April 26, 2016 Abdul er sannarlega ríkari maður en áður en hins vegar virðist vera svo að ekki hafi allir fjármunirnir skilað sér til hans. Fyrir skemmstu rataði inn á vefinn upptaka af símtali hans við blaðakonuna Carol Malouf en hún hefur aðstoðað Gissur við að koma peningunum til Abdul. Í myndbandinu heyrist Carol meðal annars segja að hún gæti látið skera tunguna úr Sýrlendingnum. Vegna málsins hefur Gissur svarað fyrir sig á Twitter. Þar segir hann að honum misbjóði upptakan sem rataði á netið. Í kjölfarið birtir hann upplýsingar um afdrif peninganna sem söfnuðust. Í fyrstu var gerð tilraun til að koma peningunum til Abdul með PayPal en þar sem þjónusta PayPal er bönnuð í Líbanon hafi það ekki gengið. Þeir peningar hafi verið sendir til baka en við það hafi dágóð summa orðið eftir. „[Carol] hjálpaði Abdul að kaupa veitingastað. Hún lét hann hafa 65.000 dollara í reiðufé. Hún hélt eftir, síðast þegar ég vissi, 18.000 dollurum vegna þess að hún ber ábyrgð á honum í Líbanon. Ef veitingastaðurinn fer á hausinn og honum er stefnt þá lendir það á henni,“ skrifar Gissur á Twitter-sína. I got recommended a man in Dubai that said he would get the money to Abdul. Here I send him the money #BuyPens pic.twitter.com/N8iD3iCL4M— Gissur Simonarson CN (@GissiSim) April 26, 2016 He tried and tried to get the money out of Paypal, however he was not able to. Here he sent it back #BuyPens pic.twitter.com/jsY4HFPzuP— Gissur Simonarson CN (@GissiSim) April 26, 2016 Gissur hefur skorað á Carol að birta upplýsingar sem sýna hvað varð um peningana. Carol hefur einnig tjáð sig um málið á Twitter. Þar segir hún meðal annars að Abdul hafi tapað 90.000 dollurum og í kjölfarið kennt henni um skuldir sínar. „Þetta er allt vel skráð hjá okkur,“ skrifar hún. „Við leiðbeindum honum. Hann hlustaði ekki á okkur. Hann tapaði peningunum sínum og nú kennir hann okkur um. Þannig er það. Við eigum þetta allt til á upptöku,“ segir hún. Að auki hefur hún endurtíst skeytum frá mönnum sem benda á að málið sé líklega runnið undan rifjum stuðningsmanna Bashar al-Assad, Sýrlandsforseta. Hvað sem þeim skýringum líður er allavega ljóst um milljón íslenskra króna hefur einhverstaðar á leiðinni orðið milliliðum að bráð.We were getting calls from people saying he owes them money. We paid the debt from the money. Left 4000$ guarantee. https://t.co/RyXpoWvp1Z— Carol Malouf (@carolmalouf) April 26, 2016 @Buy_Pens @GissiSim pic.twitter.com/XWkytNBzTs— iad tawil (@iadtawil) April 26, 2016 Carol has worked very hard to help Abdul. She helped him get an apartment, helped him fill out his paperwork, get his children to school etc— Gissur Simonarson CN (@GissiSim) April 26, 2016 Well he kept changing his version. I'm not sure what he wants, I'm not sure he even knows the exact remaining number https://t.co/b31XFMu3jq— Carol Malouf (@carolmalouf) April 26, 2016
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Sjá meira