Eigandi Bröndby úthúðaði þjálfurum og leikmönnum á spjallborði undir dulnefni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. mars 2016 09:45 Per Rud, til vinstri, og Jan Bech Andersen, til hægri. Samsett mynd/Vísir/Getty
Jan Bech Andersen, eigandi og stjórnarformaður danska stórliðsins Bröndby, hefur orðið uppvís að því að hann hefur í nokkrun tíma hefur hann tekið þátt í umræðum á spjallborði á stuðningsmannavef liðsins undir dulnefni. Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Danmörku en í morgun var staðfest að Thomas Frank er hættur sem aðalþjálfari liðsins. Jan Bech Andersen birti svo í morgun yfirlýsingu á heimasíðu félagsins þar sem hann baðst afsökunar á hegðun sinni á spjallborðinu. Danska blaðið Ekstra Bladet hefur fengið staðfest að „Oscar“ sé í raun Bech Andersen sem hefur ekki sparað stóru orðin þegar kemur að því að gagnrýna bæði þjálfara og leikmenn félagsins. Hann hefur gagnrýnt leikmannakaup félagsins og meira að segja látið Johan Elmander, dýrasta leikmann Bröndby, fá það óþvegið. Meðal þeirra sem eigandinn hefur gagnrýnt hvað mest er Per Rud sem þar til fyrr í þessum mánuði var yfirmaður knattspyrnumála og yfirþjálfari Þróttar. Sjá einnig: Þróttarar ráða Dana sem yfirmann knattspyrnumála „Per Rud var algjörlega 100 prósent vanhæfur. Að Aldo [Petersen, fyrrum stjórnarformaður Bröndby] hafi einn síns liðs tekið þá ákvörðun að ráða þjálfara sem hafði aldrei komið að þjálfun aðalliðs og er samtímis þúsundþjalasmiður hjá félagi sem hefur ekki gert neitt síðan á áttunda áratugnum er það heimskasta sem hefur verið gert. Og guð veit að það hefur kostað sitt.“ Bech Andersen kom upp um sig sjálfur. Hann setti inn færslu sem hann skrifað undir með eigin nafni en færslan var skráð á áðurnefndan Oscar. Hann hefur neitað að tjá sig um málið, rétt eins og fulltrúar félagsins og Per Rud. Frétt Ekstra Bladet má lesa hér.
Fótbolti Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Sjá meira