Chelsea-tríó með doktorsgráðu í markafræði Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. desember 2016 06:00 PhD: Pedro, Eden Hazard og Diego Costa, eru búnir að skora 27 mörk og leggja upp ellefu en það er svipað og MSN og betri árangur en hjá BBC. vísir/Getty
Chelsea vann leik í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar hin víðfræga umferð á öðrum degi jóla fór fram (mínus tveir leikir). Það þykir ekki saga til næsta bæjar þessa dagana því Chelsea getur ekki tapað. Lærisveinar Antonios Conte unnu tólfta leikinn í röð í ensku úrvalsdeildinni í gær sem er met en ekkert lið hefur áður unnið svo marga leiki í röð á einu tímabili. Metið átti Manchester United sem er reyndar komið á skrið líka. Chelsea heldur sex stiga forskoti á toppi deildarinnar en allt hefur breyst hjá Lundúnaliðinu eftir að knattspyrnustjóri þess, Antonio Conte, breytti í 3-4-3 leikkerfið sem hann fór langt með að fullkomna með Juventus á Ítalíu. Conte var nóg boðið eftir 3-0 tap gegn Arsenal í lok september og frumsýndi 3-4-3 í næsta leik gegn Hull. Síðan þá er liðið búið að innbyrða 36 stig af 36 mögulegum og þykir líklegast til að vinna deildina.Ný skammstöfun í bænum Í spænsku 1. deildinni snýst meira og minna allt um baráttu Cristianos Ronaldo og Lionels Messi. Þegar menn eru ekki bara uppteknir af þeim þykir mikið sport að tala um framherjatríóin sem hafa verið skírð MSN (Messi, Suárez, Neymar) og BBC (Bale, Benzema, Cristiano Ronaldo). Erfitt var að ímynda sér að hægt væri að búa til betri þrenningar en Chelsea er búið að finna sína heilögu þrenningu. Pedro Rodríguez, Eden Hazard og Diego Costa eru óstöðvandi þessa dagana og hafa fengið sína eigin skammstöfun. Hún tengist ekki fréttavefjum eins og MSN og BBC heldur er leitað í læknisfræðina. Þremenningarnir eru kallaðir PhD og má því segja að þeir séu komnir með doktorsgráðu í markafræði enda gera þeir lítið annað en að skora eða leggja upp mörk. Pedro skoraði tvö og lagði upp eitt í 3-0 sigrinum á Bournemouth í gær og er nú búinn að skora fimm og leggja upp fimm önnur. Hann er baneitraður á Brúnni en þar hafa öll mörkin og stoðsendingarnar litið dagsins ljós.Á pari við MSN Eden Hazard skoraði eitt og er nú búinn að skora níu og leggja upp eitt en Diego Costa er þeirra hættulegastur með þrettán mörk og fimm stoðsendingar. Samtals er PhD-tríóið búið að skora 27af 38 mörkum Chelsea og leggja upp önnur ellefu. Þetta er á pari við hið ótrúlega MSN-tríó Börsunga sem er búið að skora 28 mörk og leggja upp önnur 16 í spænsku 1. deildinni. Chelsea er vissulega ekki í Meistaradeildinni en sé tölfræðin þar tekin með er MSN í sérflokki. BBC-tríóið hefur verið svolítið meitt og aðeins spilað ellefu leiki á kjaft í spænsku deildinni en það er „aðeins“ búið að skora 19 mörk og leggja upp fimm. Ronaldo ber það tríó á herðum sér með tíu mörk eða meira en Benzema og Bale til samans.Kominn í hóp með Eiði Smára Markið sem Eden Hazard skoraði fyrir Chelsea í gær er það 50. sem Belginn magnaði setur í búningi Chelsea. Hann varð um leið sjötti maðurinn til að skora 50 mörk fyrir Lundúnaliðið og er þar kominn í hóp með ansi góðum mönnum. Einn þeirra er okkar eigin Eiður Smári Guðjohnsen en auk hans skoruðu Frank Lampard, Didier Drogba, Jimmy Floyd Hasselbaink og Gianfranco Zola allir að minnsta kosti 50 mörk fyrir Chelsea. Haldi Pedro, Hazard og Costa áfram í framhaldsnáminu er erfitt að sjá nokkurt lið stöðva Chelsea á leið að titlinum. tomas@365.is
Enski boltinn Mest lesið Bönnuðu henni að eiga kærasta Sport Tileinkar látnum vini sínum sögulegan árangur: „Bjarki, þetta var fyrir þig“ Sport Sá sem handtók Scheffler fylgdi ekki verkreglum en ákærurnar standa Golf Allir á eitt við erfiðar aðstæður: „Þetta tók alveg á“ Íslenski boltinn Lögreglan kórónaði ömurlegan dag hjá Kane Körfubolti KA-menn kölluðu eftir hjálp sálfræðings Íslenski boltinn „Við erum sáttir með að vera bara seigir og ljótir“ Körfubolti Xavi hætti við að hætta en hefur nú verið rekinn frá Barcelona Fótbolti Enginn skotið eins mikið án þess að hitta: „Kane fékk bara galopna þrista, galopna“ Körfubolti „Sterkasta Subway deild frá upphafi“ Körfubolti Fleiri fréttir Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Paquetá ákærður fyrir að sækjast eftir spjaldi í eigin leikjum Lopetegui tekur við West Ham Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Talið að Man Utd láti Ten Hag fara eftir úrslitaleikinn Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar Liverpool auglýsir lausa stöðu í þjálfarateymi Arne Slot Börn Bruno Fernandes kvöddu Jóhann: „Hann er toppmaður“ Ekki á heimleið: „Á inni nokkur ár á háu stigi“ Pochettino farinn frá Chelsea Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Rashford líka skilinn eftir heima Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Liverpool staðfestir komu Slot Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Dagný framlengir samning sinn við West Ham Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Sjá meira