Dómari kallaði fyrrverandi þingmann raðbarnaníðing Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2016 19:54 Dennis Hastert. Vísir/EPA
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur dæmt Dennis Hastert til fimmtán mánaða fangelsisvistar. Við uppkvaðninguna kallaði dómarinn Hastert, sem er fyrrverandi þingmaður Repúblikana, raðbarnaníðing. Sjá frétt BBC um málið hér. Hastert sagði í réttarsal að hann skammast sín fyrir að hafa misnotað traust nemenda á áttunda áratug síðustu aldar.Hastert var þingmaður Illinois-ríkis frá árinu 1987 til 2007. Hann er sá Repúblikani sem hefur setið hvað lengst í stóli forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og var á þeim tíma staðgengill forseta Bandaríkjanna. Margir af fyrrverandi félögum í Repúblikanaflokknum hans höfðu kallað eftir því að dómarinn myndi náða hann. Í október síðastliðnum játaði hann að hafa brotið gegn bankalögum eftir að hann reyndi að borga manneskju 3,5 milljónir Bandaríkjadala fyrir að segja ekki frá brotum hans. Saksóknarar segja Hastert hafa misnotað fimm drengi á meðan hann starfaði sem þjálfari við skóla í Yorkville, úthverfi í Chicago, á árunum 1965 til 1981. Ekki var hægt að ákæra Hastert fyrir þau brot vegna þess að þau höfðu fyrnst. Verjendur Hastert höfðu farið fram á að hann yrði ekki dæmdur til fangelsisvistar sökum slæmrar heilsu en Hastert er 74 ára gamall og notast við hjólastól. Dómarinn í málinu, Thomas Durkin, sagði Hastert einnig þurfa að undirgangast meðferð fyrir kynferðisafbrotamenn og afplána tvö ár á skilorði eftir að losnar úr fangelsi. Auk þess þarf hann að greiða 250 þúsund dollara í sjóð til styrktar fórnarlamba kynferðisofbeldis.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Sjá meira