Hnefarnir tala á þinginu í Suður-Afríku Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2016 10:11
Til átaka kom á milli stjórnarandstöðuþingmanna og öryggisvarða á þingi Suður-Afríku í gær. Þingmennirnir ætluðu að koma í veg fyrir að Jacob Zuma, forseti landsins, gæti flutt erindi á þinginu. Um 20 þingmenn voru dregnir úr sætum sínum og fluttir úr þingsalnum.Samkvæmt AFP fréttaveitunni tilheyra þingmennirnir flokknum Economic Freedom Fighters, en Julius Malema, formaður þeirra, kallaði yfir salinn að réttast væri að henda Jacob Zuma út. Eftir að þingmönnunum var hent út sagði Malema að ef öryggisverðirnir beittu ofbeldi yrði þeim svarað með ofbeldi. Þrýstingur á Zuma hefur aukist verulega og verða kröfurnar um að hann segi af sér eða verði vikið úr embætti sífellt háværari. Æðsti dómstóll Suður-Afríku komst að þeirri niðurstöðu í mars að Zuma hefði brotið gegn stjórnarskrá landsins þegar hann notaði opinbera fjármuni til að byggja upp sveitasetur sitt. Þá komst annar dómstóll að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði að 800 kærur vegna spillingar varðandi vopnakaupasamning, væru löglegar. Þeim var vikið frá áriðo 2009, skömmu áður en Zuma varð forseti.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira