Di Maria var of þreyttur fyrir læknisskoðunina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 13:15 Angel Di Maria. Vísir/Getty
Argentínumaðurinn Angel Di Maria er ekki enn búinn að ganga frá félagsskiptum sínum frá Manchester United yfir í franska félagið Paris Saint-Germain. Ástæðan er að leikmaðurinn var of þreyttur fyrir læknisskoðunina eftir 20 klukkutíma ferðalag frá Argentínu til Doha en Daily Mail segir frá þessu. Paris Saint-Germain borgar enska félaginu 44 milljónir punda fyrir leikmanninn en fyrir aðeins ári síðan keypti Manchester United hann á 59,7 milljónir punda frá Real Madrid. Angel Di Maria hóf ferðalagið frá Argentínu til Katar á sunnudagskvöldið en fékk að fara upp á hótel til að hvíla sig og seinka læknisskoðuninni sem fer fram seinna í dag. Eftir læknisskoðunina hjá Angel Di Maria mun hann síðan fljúga til Parísar þar sem hann skrifar undir fjögurra ára samning við Paris Saint-Germain. Angel Di Maria byrjaði vel hjá Manchester United með tvö mörk og tvær stoðsendingar í fyrstu fjórum leikjunum en náði ekki að fylgja þeirra góðu byrjun eftir. Hann náði aldrei að standa undir því að vera dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins og varð ekki sá bjargvættur sem Louis Van Gaal og United-menn höfðu vonast eftir. Hann klæddist sjöunni eins og hetjurnar George Best, Bryan Robson, Eric Cantona, David Beckham og Cristiano Ronaldo en hefði kannski betur sleppt því að setja þá pressu á sig.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira