Van Persie á leið til Tyrklands og Schweinsteiger í læknisskoðun í dag 12. júlí 2015 11:30 Joachim Löw og Bastian Schweinsteiger takast hér í hendur eftir leik Þýskalands og Alsírs á HM í fyrra. vísir/getty
Robin van Persie hefur að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik með Manchester United. Hann mun í dag halda til Tyrklands til að ganga frá vistaskiptum sínum til Fenerbahce. "Áður höfðum við sagt frá því að við værum í viðræðum við Manchester United og hollenska leikmanninn Robin van Persie. Að kvöldi sunnudagsins 12. júlí mun hann mæta til Istanbul," segir í yfirlýsingu á heimasíðu Fenerbahce. Þá er haft eftir Sky Sports að þýski miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger muni fara í læknisskoðun hjá Manchester United í dag. Ef hann stenst hana, þá á aðeins eftir að semja um kaup og kjör. Kaupverðið er talið vera 14,4 milljónir punda eða sem nemur um 3 milljörðum króna. Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins í knattspyrnu, spáir því að Bastian Schweinsteiger muni slá í gegn með Manchester United. "Basti er mikill leiðtogi og heimsklassa leikmaður sem getur sett mark sitt á öll lið, þ.m.t. auðvitað Manchester United. Hann þekkir Louis van Gaal, sem vildi fá hann. Það veit á gott. Ég veit að hann [Schweinsteiger] hefur enn mikinn metnað og háleit markmið. Hann mun mæta nýrri áskorun í Englandi með því að helga sig verkefninu," segir Löw.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Sjá meira