Áætlun um lokun Guantanamo-fangabúðanna sögð á lokastigi Bjarki Ármannsson skrifar 22. júlí 2015 23:15 Aðbúnaður og meðferð fanga í Guantanamo hefur oft verið harðlega gagnrýnd. Vísir/AFP
Áætlun ríkisstjórnar Barack Obama Bandaríkjaforseta um lokun fangabúðanna í Guantanamo er sögð á lokastigi og er von á að hún verði send Bandaríkjaþingi á næstunni. Obama hét því að loka búðunum þegar hann var fyrst kjörinn forseti árið 2008. Það var George Bush yngri, forveri Obama í starfi forseta, sem hóf að nota fangabúðirnar í Guantanamo á Kúbu til að vista grunaða hryðjuverkamenn í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York árið 2001. Aðbúnaður og meðferð fanga í búðunum hefur oft verið harðlega gagnrýnd en fangar sem hafa dvalið þar hafa meðal annars lýst pyntingum af hálfu fangavarða. Obama hefur bent á að fangabúðirnar skaði ímynd Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi og lofaði því í kosningabaráttum sínum árin 2008 og 2012 að þeim yrði lokað. Það hefur reynst honum þrautin þyngri að standa við þau orð, en forsetinn hefur mætt mikilli andstöðu bandaríska þingsins í hvert sinn sem ríkisstjórn hans hefur reynt að koma í gegn lagasetningu á búðirnar. Obama á nú innan við átján mánuði eftir í Hvíta húsinu og er hann talinn leggja mikla áherslu á að loka búðunum og senda fangana annað áður en kjörtímabil hans rennur út. Að því er fréttaveitan Bloomberg hefur eftir Josh Earnest, upplýsingafulltrúa Hvíta hússins, miðar áætlun forsetans að því að loka fangabúðunum í Guantanamo á sem öruggastan og ábyrgastan máta.
Tengdar fréttir Í Guantanamo án dóms og laga í sex ár Ástralinn David Hicks var dæmdur í sjö ára skilorðsbundið fangelsi árið 2007 eftir að hann játaði fyrir herrétti að hafa liðsinnt hryðjuverkamönnum. 20. febrúar 2015 09:08 Guantanamo-fangi lýsir pyntingum Dagbækur manns, sem enn er fangi í Guantanamo-búðunum, hafa nú komið út á bók. Þær voru skrifaðar árið 2005 en fyrir þremur árum fengu lögmenn hans leyfi til að fá þær afhentar. Engin áform eru um að gefa út ákærur á hendur honum. 21. janúar 2015 07:00 Stjórnvöld ritskoðuðu dagbókina Mohamedou Slahi skrifaði dagbók um vist sína í Guantanamo-fangabúðunum árið 2005 og það hefur tekið sjö ár fyrir lögfræðinga hans að fá hana samþykkta til útgáfu. 24. janúar 2015 16:00 Fjórtán þingmenn vilja fordæma pyndingar CIA Tilefnið er birting skýrslu öldungadeildar bandaríska þingsins sem lýsir hrottalegum pyndingum sem framkvæmdar voru undir stjórn CIA. 12. desember 2014 11:01 Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Sjá meira
Í Guantanamo án dóms og laga í sex ár Ástralinn David Hicks var dæmdur í sjö ára skilorðsbundið fangelsi árið 2007 eftir að hann játaði fyrir herrétti að hafa liðsinnt hryðjuverkamönnum. 20. febrúar 2015 09:08
Guantanamo-fangi lýsir pyntingum Dagbækur manns, sem enn er fangi í Guantanamo-búðunum, hafa nú komið út á bók. Þær voru skrifaðar árið 2005 en fyrir þremur árum fengu lögmenn hans leyfi til að fá þær afhentar. Engin áform eru um að gefa út ákærur á hendur honum. 21. janúar 2015 07:00
Stjórnvöld ritskoðuðu dagbókina Mohamedou Slahi skrifaði dagbók um vist sína í Guantanamo-fangabúðunum árið 2005 og það hefur tekið sjö ár fyrir lögfræðinga hans að fá hana samþykkta til útgáfu. 24. janúar 2015 16:00
Fjórtán þingmenn vilja fordæma pyndingar CIA Tilefnið er birting skýrslu öldungadeildar bandaríska þingsins sem lýsir hrottalegum pyndingum sem framkvæmdar voru undir stjórn CIA. 12. desember 2014 11:01