Slá þessir í gegn í vetur? Kristinn Páll Teitsson skrifar 8. ágúst 2015 10:00 Tekst honum að fylla í skarð Raheem Sterling? Vísir/Getty
Roberto Firmino - Liverpool 23 ára Brasilíumaður. 181 sm Kom frá Hoffenheim á 29 milljónir punda Stuðningsmenn Liverpool bíða mjög spenntir eftir því að sjá þennan sókndjarfa miðjumann á Anfield. Þetta er brasilískur landsliðsmaður sem sló í gegn hjá Hoffenheim í Þýskalandi. Þar var hann í fjögur og hálft ár eftir að hafa spilað með Figueirense í heimalandinu þar á undan. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu í nóvember á síðasta ári og hefur síðan verið fastamaður í brasilíska hópnum. Hann spilaði með Brössum á Copa America í sumar. Firmino getur spilað í holunni og einnig á vængnum eða sem framherji. Fjölhæfur og hæfileikaríkur. Hjá Hoffenheim spilaði hann með fyrrum leikmanni Liverpool, Ryan Babel, en Hollendingurinn ber honum vel söguna. Segir að hann geti hlaupið með boltann, sé með frábær skot og stungusendingar hans séu einnig í hæsta gæðaflokki. Hann ætti að hafa allt til þess að slá í gegn á Anfield í vetur. Raheem Sterling - Man. CityRaheem Sterling20 ára Englendingur. 170 sm.Kom frá Liverpool á 49 milljónir punda Fór úr því að vera dýrkaðasti maðurinn í Liverpool í að vera sá hataðasti. Þessi vonarstjarna Rauða hersins fór fram á sölu hjá Liverpool þar sem hann vildi vinna titla. Ummæli sem eru ekki líkleg til vinsælda. Hann fékk sínu fram og Liverpool fékk heldur betur vænan skilding fyrir hann. Að sama skapi missir Liverpool heilmikið í þessum hæfileikaríka fótboltamanni. Þó svo Sterling sé ungur að árum er pressa á honum enda afar stór fjárfesting fyrir City. Hann hefur farið vel af stað með liðinu og litið vel út á undirbúningstímablinu. Það er eitt og enska úrvalsdeildin er svo annað. Það verður síðan afar áhugavert er hann snýr aftur á Anfield í vetur. Þar fær hann tæplega hlýjar móttökur. Memphis Depay - Man. UtdMemphis Depay21 árs Hollendingur. 176 sm.Kom frá PSV Eindhoven á 25 milljónir punda. Það er þegar byrjað að líkja hollenska undrabarninu Memphis Depay við Cristiano Ronaldo þó svo hann hafi ekki enn spilað sinn fyrsta alvöru leik fyrir Man. Utd. Ronaldo kom til Man. Utd ungur að aldri og blómstraði í að verða besti knattspyrnumaður heims. Margir sjá fyrir sér að Memphis geti fetað sömu slóð. Hæfileikarnir eru svo sannarlega til staðar en það verður pressa á stráknum. Miðað við hans orð er hann alls óhræddur við pressu og ætlar sér stóra hluti. Hann hefur vaxið með hverju árinu hjá PSV og varð markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar á síðustu leiktið. Hann er einnig lykilmaður í hollenska landsliðinu. Memphis mun koma með hraða, ákveðni og hæfileika til að brjóta upp leiki í lið Man. Utd. Toby Alderweireld - TottenhamToby Alderweireld26 ára Belgi. 187 sm.Kom frá Atletico Madrid á 11,5 milljónir punda. Sterkur belgískur varnarmaður sem þekkir sig vel í enska boltanum eftir að hafa verið á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð. Getur spilað bæði sem miðvörður og bakvörður. Kemur úr hinum margrómaða knattspyrnuskóla Ajax og vann þrjá meistaratitla með Ajax áður en hann fór til spænska stórliðsins Atletico Madrid. Hjá Ajax mynduðu hann og Jan Vertonghen saman miðvarðarpar og eru nú sameinaðir á ný hjá Spurs. Á fyrsta tímabili hjá Atletico varð hann spænskur meistari og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann var svo lánaður til Southampton sem átti að geta keypt hann í sumar en Atletico sleit samkomulaginu, seldi til Spurs og sér ekki fyrir endann á því máli. Hann hefur verið fastamaður í belgíska landsliðinu síðan 2998 og er búinn að spila yfir 40 landsleiki fyrir firnasterkt landslið Belga.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Sjá meira