Góðhjartaði vinstri bakvörðurinn fær tækifæri í ensku úrvalsdeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. ágúst 2015 10:30 Tyrone Mings Vísir/Getty
Sumarið 2012 íhugaði Tyrone Mings að leggja skóna á hilluna til að gerast húsnæðislánaráðgjafi. Blessunarlega lét hann það eiga sig og nú, þremur árum seinna, er hann dýrasti leikmaður í sögu Bournemouth og á að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni. Þessi öskubuskusaga byrjaði hjá Southampton þar sem Mings fékk sitt fótboltauppeldi. Hann var hins vegar látinn fara frá Dýrlingunum þegar hann var 16 ára vegna þess að hann var ekki nógu líkamlega þroskaður. Það hefur þó tognað all hressilega úr Mings en í dag er hann 196 cm á hæð. Árið 2011 gekk Mings til liðs við utandeildarlið Yate Town en meðfram því að leika með liðinu vann hann við glasatínslu á bar. Mings fékk svo vinnu í húsnæðislánabransanum og gekk svo vel þar að hann hugsaði alvarlega um að hætta í fótbolta. En hann hélt áfram og gekk í raðir Chippenham Town. Þaðan var hann svo keyptur til Ipswich Town á 10.000 pund eftir að hafa heillað knattspyrnustjórann Mick McCarthy í æfingaleik. Mings spilaði ekki mikið fyrstu tvö tímabil sín hjá Ipswich en eftir að Aaron Cresswell fór til West Ham opnaðist möguleiki fyrir hann. Mings eignaði sér stöðu vinstri bakvarðar og frammistaða hans fór að vekja athygli, svo mikla að hann var orðaður við lið á borð við Arsenal og Chelsea. Mings vakti ekki einungis athygli innan vallar heldur einnig utan hans, en bakvörðurinn sterki er duglegur að láta gott af sér leiða. Hann gaf heimilislausum t.a.m. að borða á jólunum fyrir tveimur árum og í byrjun síðasta tímabils endurgreiddi hann stuðningsmönnum Ipswich treyjur með nafninu hans aftan á eftir að hann skipti um treyjunúmer.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira