Tekst Van Gaal að koma Manchester United aftur af alvöru inn í titilbarátuna? 7. ágúst 2015 06:00 Hollensk tvenna, tekst þeim að skjóta Manchester United í Meistaradeildina? Vísir/Getty
Manchester United komst aftur upp í Meistaradeildarsæti á fyrsta tímabili liðsins undir stjórn Hollendingsins Louis Van Gaal en getur þessi gamalreyndi þjálfari komið United aftur í titilbaráttuna þar sem liðið var fastagestur í stjóratíð Sir Alex Ferguson? Manchester United er þegar búið að kaupa leikmenn fyrir um 300 milljónir punda síðan Van Gaal tók við liðinu. Síðasta tímabil snerist aðallega um að hreinsa upp skítinn eftir martraðarleiktíð Davids Moyes en nú eru kröfurnar miklu meiri. Louis Van Gaal hefur nú fengið tíma til að búa til sitt lið og þróa leikstíl eftir sínu höfði. Það tók allt sinn tíma á síðustu leiktíð en liðið komst á skrið eftir erfiða byrjun. Van Gaal hefur enn ekki fundið miðvörð eða framherja sem liðið þarf svo mikið á að halda en það er enn tími til þess áður en glugginn lokast í lok mánaðarins. Tími Angels Di Maria á Old Trafford var stuttur og bitlaus en vonir standa til að Hollendingurinn ungi, Memphis Depay, lífgi upp á sóknarleik liðsins. Bastian Schweinsteiger eru önnur spennandi kaup sé hann laus við meiðslin sem hann hefur burðast með undanfarin ár. Annar athyglisverður miðjumaður er Morgan Schneiderlin sem kemur frá Southampton. Krafa númer eitt á Old Trafford er án vafa að blanda sér í titilbaráttuna en það gæti reynst erfitt fyrir Van Gaal að koma United-liðinu alla leið á toppinn. Til að svo yrði þyrfti hann að finna réttu mennina fyrir lok gluggans og að nýju mennirnir smellpassi bæði inn í liðið sem og enska boltann. Manchester City hefur fengið til liðs við sig ensku leikmennina Raheem Sterling, Fabian Delph og Patrick Roberts en á sama tíma hafa Frank Lampard, Stevan Jovetic og James Milner farið frá félaginu ásamt því að bosníski framherjinn Edin Dzeko er á förum. Líklegt er að Manuel Pellegrini reyni að næla í einhverja leikmenn áður en leikmannaglugginn lokar en ef gengið verður frá sölunni á Dzeko til Roma verður félagið aðeins með tvo framherja, þá Wilfried Bony og Sergio Agüero. Varnarleikur liðsins var slakur á síðasta ári og stóð Eliaquim Mangala engan vegin undir þeim verðmiða sem Manchester City greiddi fyrir hann. Hann og Vincent Kompany þurfa að eiga gott tímabil til þess að Manchester City eigi tækifæri á að gera atlögu að meistaratitlinum. Rétt eins og Kompany verður Yaya Toure alger lykilleikmaður fyrir þetta Manchester City lið. Hann, rétt eins og Bony, verður með liðinu allt tímabilið að þessu sinni en ekki er leikið í Afríkubikarnum á þessu tímabili. Yaya Toure hefur verið lykilleikmaður bæði árin sem Manchester City varð meistari og þarf Manuel Pellegrini að ná fram því besta í miðjumanninum frá Fílabeinsströndinni. Fréttablaðið spáir að Manchester-liðin taki tvö síðustu Meistaradeildarsætin en það verði Lundúnaliðin sem verði í tveimur efstu sætunum.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Sjá meira