Tekst Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea að tryggja sér Evrópusæti? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson var flottur á síðasta tímabili. Vísir/Getty
Íslenskir áhugamenn um enska boltann eiga það flestir sameiginlegt að fylgjast vel með gangi mála hjá eina Íslendingaliði ensku úrvalsdeildarinnar burtséð frá því með hvaða liði þeir halda í sjálfri deildinni. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson stimplaði sig með frábærum hætti inn í velska liðið Swansea City á síðustu leiktíð og átti mikinn þátt í að Swansea náði sínum besta árangri í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi, bæði hvað varðar sæti og stig. Áttunda sæti var þó ekki nóg til að skila Swansea-liðinu í Evrópukeppnina, því þar vantaði bara eitt sæti og fjögur stig upp á. Southampton tók sjöunda og síðasta Evrópusætið en nú er að sjá hvort Gylfi og félagar geti tekið eitt skref upp og komið liðinu í Evrópu. Byrjun Gylfa á síðustu leiktíð var draumi líkust, hann lagði upp fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar og skoraði síðan sigurmarkið sjálfur í 2-1 sigri á Manchester United á Old Trafford. Swansea fær aftur verðugt verkefni í fyrsta umferð þegar liðið sækir Englandsmeistara Chelsea heim á Stamford Bridge í kvöldleik laugardagsins. Það er erfitt að ætlast til sömu draumabyrjunar og í fyrra, ekki síst þegar litið er til þess að Swansea-liðið fékk á sig níu mörk í tveimur leikjum við Chelsea á síðustu leiktíð. Fyrsti leikurinn ræður ekki úrslitum um tímabilið hjá Swansea en getur vissulega gefið tóninn fyrir leiktíðina. Fréttablaðið býst við að Swansea haldi áttunda sætinu og verði aftur að sætta sig við það að rétt missa af sæti í Evrópukeppninni. Hér til hliðar má sjá fyrsta hlutann í spá Fréttablaðsins fyrir tímabilið en við höldum síðan áfram að spá næstu daga.Spá Fréttablaðsins um sæti 8 til 20 í ensku úrvalsdeildinni 2015-16: 8. sæti Swansea City 9. sæti Southampton 10. sæti Stoke City 11. sæti Crystal Palace 12. sæti Newcastle 13. sæti West Ham 14. sæti West Bromwich Albion 15. sæti Sunderland 16. sæti Bournemouth 17. sæti Aston Villa18. sæti og fall Leicester City19. sæti og fall Norwich City20. sæti og fall Watford
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Sjá meira