Fótbolti

Bestu lið Frakklands í stríð við franska sjónvarpsstöð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bann Zlatan Ibrahimovic fór illa í forráðamenn Paris Saint-Germain.
Bann Zlatan Ibrahimovic fór illa í forráðamenn Paris Saint-Germain. Vísir/Getty
Paris Saint-Germain og Marseille, tvö af bestu liðunum í frönsku fótboltadeildinni, ætla að sniðganga frönsku sjónvarpsstöðina Canal Plus það sem eftir er tímabilsins.

Ástæðan er að Canal Plus sýndi upptökur frá samskiptum leikmanna og dómara eftir leik sem leiddi til þess að leikmennirnir Zlatan Ibrahimovic og Dimitri Payet voru báðir dæmdir í leikbann.

Leikmennirnir héldu skammarræðu yfir dómaranum eftir leik og Canal Plus tók það allt upp og sýndi svo í umfjöllun sinni um frönsku deildina. Þessar upptökur voru síðan notaðar þegar aganefnd franska sambandsins tók málið fyrir.

Zlatan Ibrahimovic fékk fjögurra leikja bann en lét ekki bara dómaratríóið heyra það því ummæli hans um frönsku þjóðina vöktu einnig sterk viðbrögð í Frakklandi.

Sjá: Zlatan sagði Frakkland vera skítaland og fékk fjögurra leikja bann

Canal Plus borgar yfir 60 milljarða á ári fyrir sjónvarpsréttinn í frönsku deildinni en í samningnum við franska knattspyrnusambandið eru ákvæði um að sjónvarpsstöðin eigi að reyna að gefa sem jákvæðasta mynd af franska fótboltanum og að hún megi ekki leggja áherslu á atvik sem gefa neikvæða mynd af deildinni.

Félögin segja í yfirlýsingu að þau vilja ekki taka áhættuna á því að eiga á hættu að fá nýjar kærur á sig vegna óheppilega ummæla leikmanna eftir umdeildar ákvarðanir dómara. Canal Plus sé með margar sjónvarpsvélar og hljóðnema á leikjum sínum og þetta sé því varúðarráðstöfun.

Hér fyrir neðan má sjá frétt á Stöð tvö um málið á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×