Mourinho hefði betur tekið vasareikninn upp sjálfur Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. júlí 2015 10:00 Chelsea er búið að eyða mun meira en Arsenal undanfarin þrjú ár. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, telur að Arsenal sé búið að eyða nógu miklum peningum til að keppa um Englandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Eyðsla Arsenal hefur samt verið töluvert minni undanfarin þrjú ár en hjá Chelsea þrátt fyrir að félagið hafi loks rifið upp veskið og keypt fokdýra leikmenn. Mourinho segir að Arsene Wenger geti ekki afsakað sig lengur úr titilbaráttunni þar sem hann er búinn að kaupa Mesut Özil, Alexis Sánchez og nú Petr Cech fyrir tíu milljónir punda frá Chelsea. „Ef þið leggið saman það sem félögin hafa eytt undanfarin þrjú ár mun nokkuð koma ykkur á óvart,“ sagði Mourinho við fréttamenn fyrir leik liðsins í ICC-mótinu.Það er samt pressa á Wenger.vísir/getty„Ef þið leggið saman Özil og Sanchez plús Chambers og Debuchy mun það koma ykkur á óvart. Náið í vasareikni. Það er auðveldast. Þá þurfa menn ekkert að spá í þetta, “ bætti Mourinho við. Að ná í vasareikni var nákvæmlega það sem fréttamenn Sky Sports gerðu, en þegar eyðsla félaganna undanfarin þrjú ár er lögð saman kemur í ljós að Arsenal er undir í baráttunni. Mourinho hefði betur tekið vasareikninn upp sjálfur áður en hann lét þetta út úr sér. Arsenal hefur eytt 148,2 milljónum punda síðustu þrjú ár en Chelsea 234,259 milljónum. Munurinn eru 86 milljónir punda eða 18 milljarðar íslenskra króna.Kaup Chelsea undanfarin þrjú ár:2013/14: Andre Schurrle £18m, Marco van Ginkel £8m, Cristian Cuevas £1.7m, Willian £32m, Isaiah Brown £209,000, Christian Atsu £3.5m, Nemanja Matic £21m, Mohamed Salah £11m, Kurt Zouma £12.5m.2014/15: Cesc Fabregas £30m, Diego Costa £32m, Mario Pasalic £3m, Felipe Luis £15.8m, Loic Remy £8.5m, Juan Cuadrado £23.3m.2015/16: Asmir Begovic £8m, Nathan £4.5m*, Danilo Pantic £1.25m.Samtals: 234,259 milljónir punda.Kaup Arsenal undanfarin þrjú ár:2013/14: Mesut Ozil £42.5m, Matt Macey £100,000.2014/15: Alexis Sanchez £35m, Mathieu Debuchy £12m, David Ospina £3m, Calum Chambers £16m, Danny Welbeck £16m, Krystian Bielik £2.4m, Gabriel Paulista £11.2m.2015/16: Petr Cech £10m.Samtals: 148,2 milljónir punda.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira