Dáist að þrautseigju Palestínumanna 10. apríl 2015 07:30 Mads Gilbert með nýútkomna bók sína, Nótt á Gasa, þar sem hann skýrir frá atburðum síðasta sumars þegar hann stóð vaktina á Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa meðan sprengjurnar féllu í gríð og erg á fólkið í kring. fréttablaðið/stefán „
Það er gjörsamlega óskiljanlegt að alþjóðasamfélagið skuli sitja hjá og láta Ísrael komast upp með þetta framferði,“ segir Mads Gilbert, norskur læknir sem hefur dvalist langdvölum á Gasa og víðar í Palestínu. „Ekkert annað ríki fengi að að drepa hundruð barna án þess að vera með einhverjum hætti refsað af alþjóðasamfélaginu.“ Honum er mikið niðri fyrir, enda hefur hann sjálfur upplifað ástandið á Gasa meðan Ísraelar láta sprengjuregnið dynja á íbúum. Hann hefur starfað sem læknir á Shifa-sjúkrahúsinu í Gasaborg og tekið þar við særðu fólki og limlestu. Sumum hefur tekist að bjarga til lífs á ný, öðrum ekki. „Umsátrið um Gasa verður æ grimmilegra. Engin uppbygging er enn þá byrjuð eftir árásarhrinuna síðasta sumar. Peningarnir, sem lofað var til uppbyggingar, hafa ekki borist og banni Ísraela við innflutningi þangað á byggingarefnum, steinsteypu, sementi, járni og stáli, hefur ekki verið aflétt. Þannig að þarna eru 100 þúsund manns sem misstu heimili sín og það er ekki byrjað á því að reisa þeim heimili eða endurbyggja þau,“ segir Gilbert.Manngerð eyðilegging „Þetta eru ekki afleiðingar jarðskjálfta heldur er þetta manngerð eyðilegging á heilu borgarsamfélagi, og þetta var í fjórða skiptið síðan 2006 sem þetta er endurtekið. Og ég hef starfað í Shifa í öll skiptin og upplifað þessar árásir sjálfur. Það er satt að segja átakanlegt að sjá átta ára gamalt barn á Gasa komið með reynslu gamals manns eða gamallar konu. Það hefur á stuttri ævi nú þegar upplifað fjórar grimmilegar hernaðarárásir Ísraela.“ Hann segir kynni sín af Palestínu hafa byrjað árið 1967 þegar hann bauð sig fram til sjálfboðastarfa á ísraelsku samyrkjubúi. „Þetta var þegar stríðið 1967 var nýhafið. Þá kom ákall frá ísraelska sendiráðinu í Noregi. Skorað var á norsk ungmenni að koma til hjálpar á samyrkjubúunum þegar íbúar þeirra þurftu að fara í herinn.“ Gilbert taldi þetta vera snilldarhugmynd og gerði sér ferð í sendiráð Ísraels í Ósló, þar sem honum var fagnandi tekið. Um kvöldið hringdi í hann Ebbe Wergeland, góð vinkona systur hans og mikil baráttukona fyrir réttindum Palestínumanna, og bauð honum í te.Aldrei heyrt um Palestínumenn „Við drukkum tíu bolla af tei þetta kvöld. Ég hafði aldrei heyrt um Palestínumenn fyrr en þá. Hún sagði mér allt um hörmungarnar 1948 og um hryðjuverk síonista. Ég hætti við að fara til Ísraels, en þannig byrjaði þetta. Svo fór ég til Beirút árin 1981 og 1982. Sumarið 1982 starfaði ég í Beirút sem ungur læknir meðan umsátur Ísraela þar stóð yfir, fáeinum vikum fyrir fjöldamorðin í Sabra og Shatila. Ég hafði aldrei upplifað stríð áður og þetta breytti mér gjörsamlega til frambúðar.“ Hann átti eftir að starfa á átakasvæðum víða um heim, í Búrma, Kambódíu, Angóla og Afganistan, en Palestína hefur verið honum hjartfólgnust. „Ég lít á Gasa nú orðið sem mitt annað heimili. Ég hef verið þar í 15 ár og ég hef dvalist þar meðan allar síðustu fjórar árásarhrinurnar hafa gengið yfir, og ég hef skrifað tvær bækur um þessa reynslu mína. Og alltaf kem ég heim auðugri manneskja og fullur aðdáunar á Palestínumönnum vegna þeirrar þrautseigju sem þeir hafa sýnt og hvernig þeim hefur tekist að halda í sjálfsvirðinguna þrátt fyrir allt sem þeir hafa þurft að þola.“ Þarna fer rödd hans að titra og blaðamaður spyr hvort það taki ekki á að starfa við þessar aðstæður.Enn í ferðabanni „Jú, en mín vandamál eru lítil samanborið við það sem þetta fólk hefur þurft að glíma við. Ekki eru börnin mín drepin, ekki er vatninu mínu stolið. Ég er með rauða vegabréfið mitt frá Noregi og get farið burt hvenær sem ég vil. Ef Ísraelar ætla sér að drepa mig þá gera þeir það bara. Og nú hefur mér verið bannað að fara til Gasa vegna þess að frásagnir okkar þaðan eru of hættulegar. Ekki er ég vopnaður. Einu vopnin mín eru hlustunarpípan, penninn minn, myndavélin og tungan. En þetta eru líka hættulegustu vopnin vegna alls þess sem Ísraelar vilja fela fyrir íslensku þjóðinni og öllu góðu fólki í heiminum.“ Hann segir Palestínumenn ekki þurfa á meðaumkun að halda, heldur sé miklu mikilvægara að fólk frétti af því sem hefur verið að gerast þar og sjái það með eigin augum. „Meðaumkun gerir kúgunina bara sársaukafyllri. Við þurfum fyrst og fremst að sýna samstöðu með réttlátum málstað þeirra. Við höfum allt of oft forðast erfiðar spurningar og horft framhjá ranglætinu.“ Gilbert er staddur hér á landi í stuttri heimsókn bæði til þess að tala á fundi Félagsins Ísland-Palestína, sem haldinn var í gærkvöld, og til að taka þátt í vísindaþingi á vegum Skurðlæknafélags Íslands og Gjörgæslu- og svæfingalæknafélags Íslands, sem hefst í dag í Hörpu.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira