Fær ekki að halda hundinum sem vakti hana í eldsvoða Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. október 2015 09:15 Kristín Inga og Óliver eru mjög náin. Vísir/Pjetur/Bryndís
Kristín Inga Ármannsdóttir sefur fast en hundurinn hennar gafst ekki upp á að reyna að vekja hana þegar eldur kviknaði í blokkinni þeirra að Írabakka. Kristín segir hundinn hafa bjargað sér en nú þarf hún að öllum líkindum að gefa hann frá sér vegna þess að íbúðin er óíbúðarhæf eftir eldinn og þarf hún því að flytja í íbúð þar sem ekki er leyfilegt að halda hund. Íbúum að Írabakka 16, sem er í eign Félagsbústaða hf, var sagt frá því í dag að allar líkur væru á því að íkveikja hefði komið af stað eldsvoða í húsinu í vikunni líkt og Vísir hefur greint frá. Miklar skemmdir hlutust af eldsvoðanum, stigagangur hússins er illa farinn og reykskemmdir eru í íbúðum hússins.Sjá einnig: Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Þá var íbúum og aðstandendum þeirra greint frá því í gær að ungur maður hefði sést á myndbandsupptöku úr myndavél í anddyri hússins rétt áður en eldurinn fór af stað. Á myndbandinu sást hann með kveikjara í hendi að sögn eins íbúa hússins.Eldurinn átti upptök sín í anddyri hússins. Vísir/Pjetur„Fólk er hrætt við að þessi einstaklingur gangi laus. Hann þarf klárlega að fá hjálp, það hlýtur einhver að vera rosalega mikið veikur að gera svona lagað,“ segir Bryndís Árný Kristínardóttir. Móðir hennar er fyrrnefnd Kristín Inga; eldsvoðinn hefur haft mikil áhrif á líf hennar. „Ég fer að sofa klukkan hálftólf en ég sef mjög fast. Svo vakna ég við það um hálftvö að hundurinn er að bíta mig, hann klóraði mig og beit mig svona laust. Hann er alls ekki vanur að gera það, hann er mjög ljúfur og góður,“ segir Kristín Inga Ármannsdóttir beðin um að lýsa hinni örlagaríku nótt. „Ég segi hættu en hann linnir ekki látum.“ Hundur Kristínar heitir Óliver og er af tegundinni chihuahua.Geymsla Kristínar varð illa úti.Vísir/Bryndís„Þegar ég stend upp þá heyri ég konu kalla að það sé kviknað í. En þegar ég opnaði hurðina að íbúðinni þá kom bara reykur framan í mig, reykurinn hafði fyllt allan stigaganginn.“ Kristínu var bjargað út um glugga og fer hún fögrum orðum um slökkviliðsmennina sem aðstoðuðu íbúa hússins þessa nótt. Einn íbúi Írabakka var fluttur á spítala eftir eldsvoðann en alls fjórtán þurfti að bjarga úr húsinu. Kristínu brá að heyra það að allt benti til þess að um íkveikju hefði verið að ræða. „Mér finnst það bara agalegt. Hver gerir svona? Ég var bara það heppin að ég á lítinn tjúa hund; hann bjargaði mér. Nú á ég að fara í aðra íbúð en mig kvíðir svolítið fyrir því því að ég má ekki hafa hundinn minn hjá mér.“Sjá einnig: Eldsvoðinn á Írabakka: Sá hvernig svartur reykurinn smaug í gegnum hurðina Bryndís dóttir hennar hefur áhyggjur af þessari þróun, hún segir móður sína vera skelkaða eftir atvikið og að hún vakni upp með andfælum á nóttunni. Bryndís varð fyrir nokkru tjóni af völdum eldsvoðans þar sem hún hafði vegna flutninga geymt kassa í geymslu móður sinnar. „Geymslan hennar mömmu var þar sem eldurinn kviknaði. Allar teikningar og allt annað eftir börnin mín síðan í leikskóla er bara farið. Það er ónýtt af sóti, reyk og bleytu. Þetta er bara ömurlegt. Ég hafði safnað öllu í kassa frá þeim, þær eru sex og átta ára í dag,“ segir Bryndís. Kristín hefur búið hjá Bryndísi síðan eldurinn varð en sama gildir um nær alla aðra íbúa hússins; þeir hafa leitað til vina og vandamanna þar til íbúðirnar á Írabakka verða hreinsaðar eða þar til íbúunum verða úthlutaðar nýjar íbúðir.
Tengdar fréttir Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Bjarga þurfti fjórtán manns af svölum blokkarinnar. 1. október 2015 06:44 Sorg og örvænting gæludýraeigenda: „Ég get ekki látið hana frá mér“ Fólk safnaðist saman í dag fyrir framan skrifstofur hússjóðsins Brynju til að mótmæla því að gæludýr eru ekki lengur leyfð í leiguíbúðum á vegum hússjóðsins. 19. maí 2015 22:01 Gæludýraeigendur fái ný búsetuúrræði Á stjórnarfundi Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins, var ákveðið að víkja ekki frá banni við gæludýrum í fjölbýlishúsum. 21. maí 2015 07:00 Fréttir Stöðvar 2: Íbúar slegnir yfir atburðum næturinnar „Hvað á maður að gera, hvert er næsta skref?“ 1. október 2015 14:44 Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Fleiri fréttir Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Sjá meira
Einn á slysadeild eftir að eldur kviknaði í Írabakka Bjarga þurfti fjórtán manns af svölum blokkarinnar. 1. október 2015 06:44
Sorg og örvænting gæludýraeigenda: „Ég get ekki látið hana frá mér“ Fólk safnaðist saman í dag fyrir framan skrifstofur hússjóðsins Brynju til að mótmæla því að gæludýr eru ekki lengur leyfð í leiguíbúðum á vegum hússjóðsins. 19. maí 2015 22:01
Gæludýraeigendur fái ný búsetuúrræði Á stjórnarfundi Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins, var ákveðið að víkja ekki frá banni við gæludýrum í fjölbýlishúsum. 21. maí 2015 07:00
Fréttir Stöðvar 2: Íbúar slegnir yfir atburðum næturinnar „Hvað á maður að gera, hvert er næsta skref?“ 1. október 2015 14:44