Christian Benteke á leið í læknisskoðun hjá Liverpool Jóhann Óli Eiðsson skrifar 19. júlí 2015 11:00 Hér sést Benteke fagna marki sínu gegn Liverpool í undanúrslitum enska FA bikarsins fyrr á árinu. vísir/getty
Liverpool og Aston Villa hafa komist að samkomulag um kaup fyrrnefnda liðsins á belgíska framherjanum Christian Benteke. Þetta kemur fram á vef Guardian. Í samningi Benteke mátti finna klásúlu um að Birmingham liðið yrði að samþykkja tilboð í hann sem næmu 32,5 milljónum punda. Liverpool mun greiða helming upphæðarinnar um leið dreifa hluta þess niður á lengra tímabil. Hinn 24 ára Benteke mun gangast undir læknisskoðun annað kvöld eða í morgunsárið á þriðjudag. Nýju liðsfélagar hans eru sem stendur á ferðalagi um Asíu og mun Benteke ekki hitta þá á miðri leið heldur bíða þeirra á Englandi þar til þeir snúa aftur. Benteke kom til Aston Villa frá Genk í heimalandinu árið 2012 og lék hundrað leiki á tíma sínum með liðinu auk þess að skora 49 mörk. Hann er annar lykilmaðurinn sem Aston Villa missir fyrir komandi tímabil en áður hafði Fabian Delph gengið til liðs við Manchester City.
Fótbolti Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira