Aðeins 35 prósent leikmannanna í fyrstu umferðinni voru enskir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2015 16:30 Joe Gomez byrjaði inná hjá Liverpool. Vísir/Getty
Enskum leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni heldur áfram að fækka samkvæmt úttekt enska blaðsins The Times en þar skoðaði blaðið hlutfall heimamanna í byrjunarliðunum í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Enskir leikmenn voru aðeins rúmlegt þriðjungur byrjunarliðsleikmanna í fyrstu tíu leikjum tímabilsins og það hefur orðið mikil breyting síðan þegar enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar 1992 þegar 69 prósent leikmannanna í byrjunarliðum fyrstu umferðarinnar voru Englendingar. Tölurnar eru ekki síst sláandi þegar þær eru bornar saman við stöðu heimamanna innan hinna stóru deildanna í Evrópu. Í fyrstu umferð spænsku deildarinnar í fyrra voru 58 prósent byrjunarliðsmanna spænskir leikmenn og 56 prósent leikmanna í byrjunarliðunum í fyrstu umferð þýsku deildarinnar voru Þjóðverjar. Tölurnar yfir þátttöku heimamanna voru aðeins lægri í Frakklandi (48 prósent) og á Ítalíu (43 prósent) en samt mun hærri en í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enska 21 árs landsliðið tók þátt í úrslitakeppni EM í sumar en aðeins fjórir leikmanna þess liðs voru í byrjunarliðum sinna liða í fyrstu umferðinni eða þeir Jack Butland (Stoke), John Stones (Everton), Matt Targett (Southampton) og Harry Kane (Tottenham). Liverpool (6 enskir leikmenn) og Manchester United (5) voru með flesta enska leikmann af stóru liðunum í deildinni og Liverpool var eina liðið í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem tefldi fram tveimur enskum táningum en það voru þeir Joe Gomez og Jordon Ibe. Hinir táningarnir í byrjunarliðum fyrstu umferðarinnar voru þeir Brendan Galloway (Everton), Matt Targett (Southampton) og Reece Oxford (West Ham). Nýliðar Bournemouth var með flesta enska leikmenn í fyrstu umferðinni eða átta en Crystal Palace notaði sjö Englendingar og liðin tvö úr Bítlaborginni, Everton og Liverpool, voru með sex hvor. Arsenal, Newcastle og Watford voru hinsvegar bara með einn enskan leikmann í fyrsta leik. Greg Dyke, yfirmaðurinn í enska knattspyrnusambandinu, hefur talað um að takmarka fjölda erlenda leikmanna í ensku úrvalsdeildinni en hefur mætt mikilli andstöðu frá félögunum sjálfum.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira