Erlent

Fjörutíu þúsund komnir heim

guðsteinn bjarnason skrifar
Þessi drengur fann sér vír til að sveifla sér í innan um yfirgefnar byggingar og húsarústir.
Þessi drengur fann sér vír til að sveifla sér í innan um yfirgefnar byggingar og húsarústir. nordicphotos/AFP
Kúrdabærinn Kobani í Sýrlandi, rétt suður af landamærum Tyrklands, er hægt og rólega að lifna við aftur eftir hörð átök fyrr í vetur milli Kúrda og innrásarliðs Íslamska ríkisins.

Alls bjuggu um 200 þúsund manns í bænum en þeir flúðu nánast allir norður yfir landamærin til Tyrklands. Síðustu vikur hafa þeir þó tekið að snúa aftur og eru nú um 40 þúsund þeirra aftur komnir til fyrri heimkynna.

Þar mæta þeim að mestu rústir einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×