Hefði verið hægt að komast hjá mistökum með samráði Viktoría Hermannsdóttir skrifar 7. mars 2015 07:00 Í skýrslu um Ferðaþjónustu fatlaðra eru lagðar fram ýmsar tillögur að úrbótum. Fréttablaðið/Stefán
Stefán Eiríksson Margt fór úrskeiðis við undirbúning þess að sameina ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgasvæðinu hjá Strætó bs. Þetta er niðurstaða sérstakrar stjórnar sem sett var yfir ferðaþjónustu fatlaðra í febrúar. Nefndin skilaði frá sér skýrslu í gær eftir fjögurra vikna vinnu en Stefán Eiríksson, sviðsstjóri á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, leiddi stjórnina. „Það er alveg ljóst, eins og segir í skýrslunni, að það var mjög margt sem fór úrskeiðis við undirbúning verkefnisins, bæði hjá sveitarfélögunum og Strætó. Þetta hefði verið hægt að laga að stóru leyti ef samráð við hagsmunasamtökin og notendur hefði verið meira í þessu innleiðingar- og framkvæmdaferli,“ segir Stefán. Tillögur stjórnarinnar snúa meðal annars að því að ferðir verði í mun meiri mæli skipulagðar með föstum hætti, sveigjanleiki þjónustunnar verði aukinn, sérstakir þjónustufulltrúar verði í þjónustuveri fyrir ferðaþjónustuna og sérhæfing þar aukin. Auk þess er lagt til að hlutlaus úttekt verði gerð á tölvukerfi og símkerfi í þjónustunni og þjálfun bílstjóra aukin. „Í skýrslunni gerum við tillögur sem snúa að því að það verði gerðar ákveðnar breytingar í framkvæmdinni til þess að koma til móts við þarfir og óskir notendanna og ekki síður sveitarfélaganna sem bera ábyrgð á þessari þjónustu,“ segir Stefán. Í skýrslunni segir að verkefni sem þetta sé ekki vel til þess fallið að setja í útboð á þann hátt sem gert var. Einnig leggur stjórnin til að ráðinn verði sérstakur stjórnandi yfir þjónustuna sem beri meðal annars ábyrgð á innleiðingu þeirra breytinga sem lagðar eru til í skýrslunni. Fjallað er sérstaklega um mál Ólafar Þorbjargar Pétursdóttur sem gleymdist í margar klukkustundir í bíl ferðaþjónustunnar 4. febrúar. Þar segir að ljóst sé að margt hafi farið úrskeiðis í því tilviki. Bílstjórinn hafi ekki haft mikla reynslu af akstri með fatlað fólk og ekki gætt að því að tryggja að allir farþegar væru farnir úr bílnum. Auk þess hafi verklag í Hinu húsinu brugðist en þar hafi verið nýir starfsmenn að störfum þar sem þeir sem eru reynslumeiri hafi verið fjarri vegna starfsdags. Einnig er gagnrýnt að forsvarsaðili akstursaðila hafi tjáð sig um málið á opinberum vettvangi og hafi ekki gætt „að þeirri trúnaðarskyldu sem hvílir á aðilum samkvæmt lögum og gildandi samningum“. Ljóst er að sumar tillagna stjórnarinnar koma ekki til framkvæmda strax en telur Stefán að öryggi farþega ferðaþjónustunnar sé tryggt á meðan? „Já, ég held að það hafi verið mjög margt gert til þess að laga brýnustu úrlausnarefnin sem snúa að öryggi þjónustunnar og þess vegna eru líkur á því að eitthvað alvarlegt gerist mun minni en áður. Það er auðvitað ekki hægt að útiloka það í þessu frekar en öðru en allt skipulagið og framkvæmdin miðast að því að ef menn fylgja öllum þeim reglum sem þarna gilda þá eigi ekki að vera frávik,“ segir Stefán.
Tengdar fréttir Erfitt fyrir ráðherra að fá skýr svör frá Strætó um ferðaþjónustu fatlaðra Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, segir atvikið í gær þar sem þroskaskert stúlka gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra mjög alvarlegt. 5. febrúar 2015 11:04 Hafa enn engin svör fengið vegna Strætó Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa enn engin svör fengið við spurningu um ferðaþjónustu fatlaðra sem lögð var fram þann 15. janúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var í átta liðum um undirbúning breytinga á fyrirkomulagi ferðaþjónustu fatlaðra og hvernig kaupum á tölvukerfi var háttað. 9. febrúar 2015 07:00 Röð mistaka hjá ferðaþjónustu fatlaðra Fleiri atriði skoðuð af neyðarstjórn en bara stúlkan sem týndist í gær. 5. febrúar 2015 15:04 Neyðarstjórn skoðar að taka ákveðna hópa út fyrir sviga Framkvæmdastjóri Strætó segir enga „kollsteypu“ til umræðu hjá ferðaþjónustu fatlaðra. 10. febrúar 2015 21:49 Saka bílstjórann um vítavert gáleysi Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands harma þann alvarlega atburð sem átti sér stað í gær hjá Akstursþjónustu Strætó b.s. 5. febrúar 2015 11:04 Strætó krossar fingur vegna ferðaþjónustu Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, bað Þórð Guðlaugsson og fjölskyldu hans afsökunar eftir að honum var ekið á rangan stað í gær og hann skilinn eftir. Þórður á bágt með að gera sig skiljanlegan en tókst að hringja í móður sína. 11. febrúar 2015 07:00 Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15 Ökumaðurinn ekki yfirheyrður: Verður rætt við hann síðar í dag til að skýra atburðarásina Málið er til skoðunar hjá lögreglu og litið alvarlegum augum. 5. febrúar 2015 11:04 Ferðaþjónusta fyrir fatlaða – hver er að misskilja hvað? Nú um áramótin tóku gildi nýjar reglur um ferðaþjónustu við fatlað fólk í Reykjavík. Nokkur umræða hefur verið um kosti og galla nýju reglnanna. Í viðtali við Fréttablaðið 23. desember sl. taldi varaformaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar að talsmenn fatlaðra hefðu misskilið breytingarnar. 7. janúar 2015 07:00 Leigubílstjórar sem aka fötluðum óánægðir Einn úr hópi bílstjóranna sagði í samtali við Fréttablaðið að gríðarleg óánægja væri meðal þeirra í garð Strætó bs. 4. febrúar 2015 07:00 Unnið út í eitt í símaveri Strætó Vinnudagar starfsfólks í símaveri Strætó eru langir eftir að fyrirtækið tók við rekstri Ferðaþjónustu fatlaðra. Sviðsstjóri segir umræðuna hafa verið ósanngjarna. 17. janúar 2015 00:01 Neyðarfundur í ráðhúsinu: Stefán settur yfir neyðarstjórn Neyðarfundur borgastjóra og bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu er hafinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Auk bæjarstjóranna er stjórn Strætó á fundinum. 5. febrúar 2015 12:39 Gagnrýna háa verðskrá ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík Átak, félag fólks með þroskahömlun, lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá á ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, í ályktun sem það hefur sent frá sér. 8. janúar 2015 16:48 Fóru aðra leið með Strætó en velferðarráð hefði kosið Óánægja með þunglamalega þjónustu og kostnaður varð til þess að velferðarráð Reykjavíkur vildi bjóða út akstur Ferðaþjónustu fatlaðra í borginni. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sömdu svo við Strætó. 23. febrúar 2015 07:00 Í annað sinn sem ferðaþjónustan brást Dodda Stuðningsfulltrúi 25 ára gamals manns sem ferðaþjónusta fatlaðra skildi eftir einan á röngum stað í hádeginu í dag, segir afleiðingarnar geta orðið þær að hann vilji ekki vera aftur á ferðinni. 10. febrúar 2015 20:00 Stjórnendur ÍTR funduðu með starfsmönnum Hins hússins í morgun Enginn tók á móti stúlkunni og ekki uppgötvaðist að hún væri týnd fyrr en hún átti að vera komin heim. 5. febrúar 2015 12:24 Fatlaðir eiga að neita að fara upp í bíla sem ekki standast öryggiskröfur Læknir segir skelfilegt ástand í umferðaröryggismálum fatlaðra. 19. febrúar 2015 19:30 Ekki verið tekin ákvörðun um hvort atvikið verði kært Ólöf Þorbjörg er komin aftur í sína rútínu en foreldrar hennar keyra hana þangað til leyst hefur verið úr vandamálum hjá Ferðaþjónustu fatlaðra. 7. febrúar 2015 07:00 Ferðaþjónusta fatlaðra – Rétt skal vera rétt Svarbréf til Þórhildar Egilsdóttur frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Árið 2006 fóru þrír einstaklingar sem notuðu Ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu frá Sjálfsbjargarhúsinu niður að Reykjavíkurtjörn. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þessir þrír einstaklingar voru búsettir 3. febrúar 2015 07:00 Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira
Erfitt fyrir ráðherra að fá skýr svör frá Strætó um ferðaþjónustu fatlaðra Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, segir atvikið í gær þar sem þroskaskert stúlka gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra mjög alvarlegt. 5. febrúar 2015 11:04
Hafa enn engin svör fengið vegna Strætó Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa enn engin svör fengið við spurningu um ferðaþjónustu fatlaðra sem lögð var fram þann 15. janúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var í átta liðum um undirbúning breytinga á fyrirkomulagi ferðaþjónustu fatlaðra og hvernig kaupum á tölvukerfi var háttað. 9. febrúar 2015 07:00
Röð mistaka hjá ferðaþjónustu fatlaðra Fleiri atriði skoðuð af neyðarstjórn en bara stúlkan sem týndist í gær. 5. febrúar 2015 15:04
Neyðarstjórn skoðar að taka ákveðna hópa út fyrir sviga Framkvæmdastjóri Strætó segir enga „kollsteypu“ til umræðu hjá ferðaþjónustu fatlaðra. 10. febrúar 2015 21:49
Saka bílstjórann um vítavert gáleysi Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands harma þann alvarlega atburð sem átti sér stað í gær hjá Akstursþjónustu Strætó b.s. 5. febrúar 2015 11:04
Strætó krossar fingur vegna ferðaþjónustu Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, bað Þórð Guðlaugsson og fjölskyldu hans afsökunar eftir að honum var ekið á rangan stað í gær og hann skilinn eftir. Þórður á bágt með að gera sig skiljanlegan en tókst að hringja í móður sína. 11. febrúar 2015 07:00
Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15
Ökumaðurinn ekki yfirheyrður: Verður rætt við hann síðar í dag til að skýra atburðarásina Málið er til skoðunar hjá lögreglu og litið alvarlegum augum. 5. febrúar 2015 11:04
Ferðaþjónusta fyrir fatlaða – hver er að misskilja hvað? Nú um áramótin tóku gildi nýjar reglur um ferðaþjónustu við fatlað fólk í Reykjavík. Nokkur umræða hefur verið um kosti og galla nýju reglnanna. Í viðtali við Fréttablaðið 23. desember sl. taldi varaformaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar að talsmenn fatlaðra hefðu misskilið breytingarnar. 7. janúar 2015 07:00
Leigubílstjórar sem aka fötluðum óánægðir Einn úr hópi bílstjóranna sagði í samtali við Fréttablaðið að gríðarleg óánægja væri meðal þeirra í garð Strætó bs. 4. febrúar 2015 07:00
Unnið út í eitt í símaveri Strætó Vinnudagar starfsfólks í símaveri Strætó eru langir eftir að fyrirtækið tók við rekstri Ferðaþjónustu fatlaðra. Sviðsstjóri segir umræðuna hafa verið ósanngjarna. 17. janúar 2015 00:01
Neyðarfundur í ráðhúsinu: Stefán settur yfir neyðarstjórn Neyðarfundur borgastjóra og bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu er hafinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Auk bæjarstjóranna er stjórn Strætó á fundinum. 5. febrúar 2015 12:39
Gagnrýna háa verðskrá ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík Átak, félag fólks með þroskahömlun, lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá á ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, í ályktun sem það hefur sent frá sér. 8. janúar 2015 16:48
Fóru aðra leið með Strætó en velferðarráð hefði kosið Óánægja með þunglamalega þjónustu og kostnaður varð til þess að velferðarráð Reykjavíkur vildi bjóða út akstur Ferðaþjónustu fatlaðra í borginni. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sömdu svo við Strætó. 23. febrúar 2015 07:00
Í annað sinn sem ferðaþjónustan brást Dodda Stuðningsfulltrúi 25 ára gamals manns sem ferðaþjónusta fatlaðra skildi eftir einan á röngum stað í hádeginu í dag, segir afleiðingarnar geta orðið þær að hann vilji ekki vera aftur á ferðinni. 10. febrúar 2015 20:00
Stjórnendur ÍTR funduðu með starfsmönnum Hins hússins í morgun Enginn tók á móti stúlkunni og ekki uppgötvaðist að hún væri týnd fyrr en hún átti að vera komin heim. 5. febrúar 2015 12:24
Fatlaðir eiga að neita að fara upp í bíla sem ekki standast öryggiskröfur Læknir segir skelfilegt ástand í umferðaröryggismálum fatlaðra. 19. febrúar 2015 19:30
Ekki verið tekin ákvörðun um hvort atvikið verði kært Ólöf Þorbjörg er komin aftur í sína rútínu en foreldrar hennar keyra hana þangað til leyst hefur verið úr vandamálum hjá Ferðaþjónustu fatlaðra. 7. febrúar 2015 07:00
Ferðaþjónusta fatlaðra – Rétt skal vera rétt Svarbréf til Þórhildar Egilsdóttur frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Árið 2006 fóru þrír einstaklingar sem notuðu Ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu frá Sjálfsbjargarhúsinu niður að Reykjavíkurtjörn. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þessir þrír einstaklingar voru búsettir 3. febrúar 2015 07:00