Fóru aðra leið með Strætó en velferðarráð hefði kosið Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. febrúar 2015 07:00 Vagn á ferð. Ferðaþjónusta fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu er mikið verkefni en samkvæmt því sem framkvæmdastjóri SSH segir eru daglega farnar 17 til 18 hundruð ferðir í kerfinu. Vandamál nái kannski til fimm prósenta umfangsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Önnur leið var farin við endurskipulagningu Ferðaþjónustu fatlaðra en lagt var upp með á vettvangi velferðarráðs Reykjavíkur. Þar hafði þjónustan og leiðir til úrbóta verið til umræðu í nokkur ár áður en lagt var í breytingar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar takmörkuð ánægja innan meirihluta velferðarráðs borgarinnar með að fela Strætó áframhaldandi umsjón með ferðaþjónustu fatlaðra. Fundargerðir velferðarráðs bera með sér að nokkurrar óánægju hafi gætt með kostnað við Ferðaþjónustuna, auk þess sem notendur þjónustunnar höfðu kvartað yfir þunglamalegri þjónustu. Ferðir þurfti til að mynda að panta fyrir ákveðinn tíma deginum áður og sveigjanleiki þjónustunnar var lítill.Í maí í fyrra. Stjórn SSH kom saman í ráðhúsinu í Reykjavík til að skrifa undir samkomulag um sameiginlega Ferðaþjónustu fyrir fatlaða.Mynd/SSHHorfði bæði hluti fulltrúa velferðarráðs, sem og hagsmunasamtök fatlaðra, til árangurs sem náðst hafði hjá Ferðaþjónustu blindra. Þar panta notendur leigubíla þegar þörf er á akstri og eiga rétt á ákveðnum fjölda ferða í mánuði hverjum. Einnig hafði sýnt sig að sú þjónusta var töluvert ódýrari en hjá Ferðaþjónustu fatlaðra fyrir breytinguna í nóvember síðastliðnum. Niðurgreiðsla borgarinnar er sögð hafa verið um 45 prósentum hærri á hverja ferð með Ferðaþjónustu fatlaðra en Ferðaþjónustu blindra. Innan velferðarráðsins var þó einnig haldið á lofti öðrum sjónarmiðum og þá sér í lagi hjá fulltrúa Vinstri grænna í ráðinu, Þorleifi Gunnlaugssyni. Hann talaði fyrir því að þjónustu við fatlaða ætti ekki að skilja frá öðrum almenningssamgöngum. „Að mati velferðarfulltrúa Vinstri grænna verður aðeins þannig unnið gegn samfélagi aðskilnaðar,“ segir í fundargerð 6. september 2012. Tillögur hans voru þó jafnharðan felldar. Á seinni hluta árs 2013, þegar stefndi í að efnt yrði til útboðs um aksturinn, bæði til að bæta þjónustu og draga úr kostnaði hjá borginni, þá breyttust viðhorf hjá Strætó, sem fram að þeim tíma hafði sagt ómögulegt að taka upp svokallaða samdægursþjónustu. Þá hafði verkfræðistofan Mannvit unnið skýrslu um sveigjanlegri þjónustu (svokallaða FLEX-þjónustu) og skipulagsbreytingar með nýju kerfi sem einnig gæti náð utan um þjónustu við fatlaða. Seint á árinu 2013 er málið komið í hendur verkefnastjórnar hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Innan SSH talaði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar (sem 2010 til 2011 var stjórnarformaður Strætó), fyrir svipuðum hugmyndum og Þorleifur Gunnlaugsson hafði haldið á lofti í velferðarráði Reykjavíkur og vildi láta fresta útboði þar til farið hefði verið yfir hvort Strætó gæti sinnt þjónustuborðsþætti ferðaþjónustunnar. Sveitarfélögin vildu öll ná fram hagræðingu og síðan var ákveðið í framhaldinu að fela Strætó utanumhald þjónustunnar. Skrifað var undir samkomulag þeirra í maí 2014 og í nóvember var svo hafinn akstur í nýju kerfi.Stefán EiríkssonEkki tímabært að ræða breytingar Hæpið er að náist á þeim hálfa mánuði sem eftir er af þeim tíma sem gefinn var til að lagfæra ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu að sníða vankantana af kerfinu, hefur fréttastofa RÚV eftir Stefáni Eiríkssyni, formanni neyðarstjórnar ferðaþjónustunnar. Rætt var við hann eftir fund Sjálfsbjargar, Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar um ferðaþjónustu Strætó um miðja síðustu viku. Stefán segir alvarlegt atvik sem upp kom í þjónustunni á þriðjudag endurspegla að enn sé ekki komið gott lag á þjónustuna. „En það eru allir að leggja sig fram við að koma þessu í rétt og öruggt horf og vonandi tekst okkur það fyrr en síðar,“ er eftir Stefáni haft. Þá útilokar hann ekki að gerðar verði tillögur um einhverjar grundvallarbreytingar. „Það er bara ekki tímabært að segja til um það.“
Tengdar fréttir Erfitt fyrir ráðherra að fá skýr svör frá Strætó um ferðaþjónustu fatlaðra Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, segir atvikið í gær þar sem þroskaskert stúlka gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra mjög alvarlegt. 5. febrúar 2015 11:04 Hafa enn engin svör fengið vegna Strætó Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa enn engin svör fengið við spurningu um ferðaþjónustu fatlaðra sem lögð var fram þann 15. janúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var í átta liðum um undirbúning breytinga á fyrirkomulagi ferðaþjónustu fatlaðra og hvernig kaupum á tölvukerfi var háttað. 9. febrúar 2015 07:00 Röð mistaka hjá ferðaþjónustu fatlaðra Fleiri atriði skoðuð af neyðarstjórn en bara stúlkan sem týndist í gær. 5. febrúar 2015 15:04 Neyðarstjórn skoðar að taka ákveðna hópa út fyrir sviga Framkvæmdastjóri Strætó segir enga „kollsteypu“ til umræðu hjá ferðaþjónustu fatlaðra. 10. febrúar 2015 21:49 Strætó krossar fingur vegna ferðaþjónustu Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, bað Þórð Guðlaugsson og fjölskyldu hans afsökunar eftir að honum var ekið á rangan stað í gær og hann skilinn eftir. Þórður á bágt með að gera sig skiljanlegan en tókst að hringja í móður sína. 11. febrúar 2015 07:00 Dagur segir atvikið í gær of alvarlegt til að grípa ekki til ákveðnari aðgerða Neyðarstjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðra hefur víðtækar heimildir til að gera breytingar. 5. febrúar 2015 14:27 Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15 Fatlaðir látnir rúnta um bæinn í hagræðingarskyni Ferðaþjónusta fyrir fatlaða í borginni er í ólestri eftir að strætó tók við rekstrinum og breytti fyrirkomulaginu. Ferð sem á að taka tíu mínútur hvora leið getur tekið marga klukkutíma. 23. nóvember 2014 18:40 Leigubílstjórar sem aka fötluðum óánægðir Einn úr hópi bílstjóranna sagði í samtali við Fréttablaðið að gríðarleg óánægja væri meðal þeirra í garð Strætó bs. 4. febrúar 2015 07:00 Unnið út í eitt í símaveri Strætó Vinnudagar starfsfólks í símaveri Strætó eru langir eftir að fyrirtækið tók við rekstri Ferðaþjónustu fatlaðra. Sviðsstjóri segir umræðuna hafa verið ósanngjarna. 17. janúar 2015 00:01 Neyðarfundur í ráðhúsinu: Stefán settur yfir neyðarstjórn Neyðarfundur borgastjóra og bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu er hafinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Auk bæjarstjóranna er stjórn Strætó á fundinum. 5. febrúar 2015 12:39 Gagnrýna háa verðskrá ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík Átak, félag fólks með þroskahömlun, lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá á ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, í ályktun sem það hefur sent frá sér. 8. janúar 2015 16:48 Stjórnendur ÍTR funduðu með starfsmönnum Hins hússins í morgun Enginn tók á móti stúlkunni og ekki uppgötvaðist að hún væri týnd fyrr en hún átti að vera komin heim. 5. febrúar 2015 12:24 Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Eldur kviknaði í Strætó Innlent Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Fleiri fréttir Heiða liggur enn undir feldi Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sjá meira
Erfitt fyrir ráðherra að fá skýr svör frá Strætó um ferðaþjónustu fatlaðra Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, segir atvikið í gær þar sem þroskaskert stúlka gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra mjög alvarlegt. 5. febrúar 2015 11:04
Hafa enn engin svör fengið vegna Strætó Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa enn engin svör fengið við spurningu um ferðaþjónustu fatlaðra sem lögð var fram þann 15. janúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var í átta liðum um undirbúning breytinga á fyrirkomulagi ferðaþjónustu fatlaðra og hvernig kaupum á tölvukerfi var háttað. 9. febrúar 2015 07:00
Röð mistaka hjá ferðaþjónustu fatlaðra Fleiri atriði skoðuð af neyðarstjórn en bara stúlkan sem týndist í gær. 5. febrúar 2015 15:04
Neyðarstjórn skoðar að taka ákveðna hópa út fyrir sviga Framkvæmdastjóri Strætó segir enga „kollsteypu“ til umræðu hjá ferðaþjónustu fatlaðra. 10. febrúar 2015 21:49
Strætó krossar fingur vegna ferðaþjónustu Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, bað Þórð Guðlaugsson og fjölskyldu hans afsökunar eftir að honum var ekið á rangan stað í gær og hann skilinn eftir. Þórður á bágt með að gera sig skiljanlegan en tókst að hringja í móður sína. 11. febrúar 2015 07:00
Dagur segir atvikið í gær of alvarlegt til að grípa ekki til ákveðnari aðgerða Neyðarstjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðra hefur víðtækar heimildir til að gera breytingar. 5. febrúar 2015 14:27
Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15
Fatlaðir látnir rúnta um bæinn í hagræðingarskyni Ferðaþjónusta fyrir fatlaða í borginni er í ólestri eftir að strætó tók við rekstrinum og breytti fyrirkomulaginu. Ferð sem á að taka tíu mínútur hvora leið getur tekið marga klukkutíma. 23. nóvember 2014 18:40
Leigubílstjórar sem aka fötluðum óánægðir Einn úr hópi bílstjóranna sagði í samtali við Fréttablaðið að gríðarleg óánægja væri meðal þeirra í garð Strætó bs. 4. febrúar 2015 07:00
Unnið út í eitt í símaveri Strætó Vinnudagar starfsfólks í símaveri Strætó eru langir eftir að fyrirtækið tók við rekstri Ferðaþjónustu fatlaðra. Sviðsstjóri segir umræðuna hafa verið ósanngjarna. 17. janúar 2015 00:01
Neyðarfundur í ráðhúsinu: Stefán settur yfir neyðarstjórn Neyðarfundur borgastjóra og bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu er hafinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Auk bæjarstjóranna er stjórn Strætó á fundinum. 5. febrúar 2015 12:39
Gagnrýna háa verðskrá ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík Átak, félag fólks með þroskahömlun, lýsir undrun sinni á nýrri gjaldskrá á ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, í ályktun sem það hefur sent frá sér. 8. janúar 2015 16:48
Stjórnendur ÍTR funduðu með starfsmönnum Hins hússins í morgun Enginn tók á móti stúlkunni og ekki uppgötvaðist að hún væri týnd fyrr en hún átti að vera komin heim. 5. febrúar 2015 12:24