Innlent

Í annað sinn sem ferðaþjónustan brást Dodda

Linda Blöndal skrifar
Aðstoðarfulltrúi 25 ára gamals manns sem ferðaþjónusta fatlaðra skildi eftir einan á röngum stað í hádeginu í dag, segir afleiðingarnar geta orðið þær að hann vilji ekki vera á ferðinni.

Þórður Guðlaugs­son­ 25 ára, eða bara Doddi, tók bíl uppúr hádegi í dag frá heimili sínu í Mosfellsbæ en í stað þess að skila honum þangað sem ferð var heitið var hann skilinn eftir í Kópavoginum, við endurhæfingarstöð þar sem enginn var til að taka á móti honum.  Doddi er með þroskahömlun og á erfitt með tala skýrt, hann er spastískur í hreyfingum svo hann gengur með stafi. 

Hefði bara verið einn og óþekktur 

Doddi bjargaði sér með símanum sínum, hann hringdi með myndavél símans í mömmu sína sem sagðist hafa fengið símtal frá manni sem sá Dodda í reiðileysi.

„Það hringdi maður í mig frá Kópavoginum sem sagði að þar væri maður sem héti Öddi staddur og þeir könnuðust ekki við að hann ætti að mæta þangað", sagði Bryndís Ingibjörg Björnsdóttir, móðir Dodda en oft hljómar nafn hans eins og „Öddi" þegar hann kynnir sig fyrir ókunnugum. „En ég er mjög fegin að hann gat hringt í mig því annars hefði hann bara verið þarna óþekktur", sagði hún í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld.  

Aðspurður hvað hefði gert í dag sagði Doddi bara stuttlega „bíllinn kom ekki". Bryndís segir að sonur sinn hafi ekki vitað hvar hann hefði verið staddur.  

Biðu í 45 mínútur

Þórunn Kristjánsdóttir, aðstoðarkona Dodda og forstöðumaður búsetukjarnans í Klapparhlíð 11 í Mosfellsbæ, þar sem Doddi býr, segir að þetta sé í annað sinn á stuttum tíma sem eitthvað fór úrskeiðis með ferðaþjónustuna.

„Það koma svo margir bílstjórar að þeir þekkja síður íbúana hjá okkur. En þetta getur haft þau áhrif að Doddi vilji bara ekki fara aftur í ferð. Það kom fyrir í síðustu viku að ég keyrði hann í vinnuna því að bíllinn kom ekki. Við biðum hérna saman við Doddi í 45 mínútur og ég hringi og spyr hvort að bíllinn sé ekki á leiðinni. Þá er okkur sagt að bíllinn hafi komið klukkan 08.31. En bíllinn kom ekki hingað. Við vitum það alveg bæði. Hann hefur farið eitthvert annað", sagði Þórunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×