Árleg hundakjötshátíð hafin þrátt fyrir mótmæli Samúel Karl Ólason skrifar 22. júní 2015 10:30 Um tíu þúsund hundum er slátrað fyrir og á hátíðinni ár hvert. Vísir/EPA
Árleg hundakjötshátíð stendur nú yfir í suðvestur Kína en henni hefur verið mótmælt gífurlega, bæði utan landamæra Kína sem og innan. Með hátíðinni er verið að fagna sumarsólsstöðum. Mótmælendur segja að hátíðin sé grimmileg en íbúar Tianjin og aðstandendur hátíðarinnar segja dýrunum slátrað á mannúðlegan hátt.Aðstandendur hátíðarinnar segja að hundunum sé slátrað mannúðlega.Vísir/EPAÁ vef BBC er haft eftir þarlendum miðlum að át hundakjöts eigi sér 400-500 ára sögu í Kína, Suður-Kóreu og öðrum löndum. Umrædd hátíð var hins vegar haldin í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum. Þegar þetta er skrifað hafa tæplega 3,9 milljónir skrifað undir áskorun um að hátíðin verði lögð niður. Myndir frá hátíðinni sýna hvar hundum hefur verið troðið í búr. Sjá einnig: Bjargaði hundrað hundum frá því að vera étnir Samkvæmt BBC hefur hundakjötsiðnaðurinn í Kína meðal annars verið sakaður um að slátra hundum sem hefur jafnvel verið stolið úr görðum fólks. Íbúar Tianjin segja að ef þeir vilji borða hundakjöt, þá geri þeir það. Þetta sé sé sterk hefð á þeirra svæði. Hundruð þúsunda notenda á samfélagsmiðlum Kína hafa hins vegar tjáð sig um hátíðina á neikvæðum nótum. Komið hefur til átaka á milli þeirra sem eru á móti hátíðinni og þeirra sem eru hliðhollir henni.Gífurlegum fjölda hunda er haldið í búrum, þar til þeir eru keyptir, drepnir og eldaðir.Vísir/EPA #StopYuLin2015 Tweets
Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Með kylfur og mikið magn vímuefna Innlent Fleiri fréttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Sjá meira