Bjargaði hundrað hundum frá því að vera étnir Jóhann Óli Eiðsson skrifar 21. júní 2015 23:11 Yang Xiayon vísir/epa
Kínversk kona á sjötugsaldri bjargaði í gær lífi hundrað hunda með því að kaupa þá fyrir upphæð sem jafngildir 150.000 íslenskum krónum. Ef hún hefði ekki komið til sögunnar hefði hundunum verið slátrað og þeir runnið ofan í maga gesta á árlegri hundakjötshátíð í borginni Yuilin. Konan, sem heitir Yang Xiaoyn og er fyrrverandi kennari, ferðaðist rúmlega 2.400 kílómetra frá heimili sínu í Tianjin til að koma hundunum til bjargar. Hefði Yang Xiaoyn ekki komið til sögunnar hefðu hundarnir endað hangandi á krók.vísir/epaFrá árinu 1995 hefur hún helgað lífi sínu því að bjarga dýrum en þá veiddi hún drukknandi kettling upp úr á. Hún hefur meðal annars selt húsið sitt til að byggja skýli fyrir dýrin en sem stendur á hún um 1.500 hunda og tvöhundruð ketti. Árlega er um tíuþúsund hundum slátrað á hátíðinni í Yulin. Heimildum ber ekki saman um hvort allir hundarnir séu ómerktir eða hvort sumir þeirra eigi húsbónda. Hundakjötsát á sér langa sögu í Kína en hátíðinni sjálfri var ekki komið á fót fyrr en árið 2009 en henni er valinn þessi dagur til að halda upp á sumarsólstöður. Fjöldi fólks hefur barist fyrir því að hún verði lögð af en þeirra á meðal má nefna leikarana Ricky Gervais og Ian Somerhalder og söngkonuna Leonu Lewis. Hér að neðan má sjá myndband sem gert var um dýrin sem Xiayon hefur bjargað og hugsar nú um sem þau væru börnin sín.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira