Endurtekur Stoke leikinn frá 1972? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. desember 2015 14:30 Leikmenn Stoke fagna Phil Bardsley sem skoraði seinna mark liðsins gegn Sheffield Wednesday. vísir/getty
Stoke City komst í gær í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir 2-0 sigur á B-deildarliði Sheffield Wednesday á heimavelli sínum, Brittania Stadium. Ibrahim Affelay kom Stoke yfir eftir hálftíma leik með sínu fyrsta marki fyrir félagið og Phil Bardsley gulltryggði svo sigurinn þegar hann kom Stoke í 2-0 á 75. mínútu. Þetta er í fyrsta sinn í 43 ár sem Stoke kemst í undanúrslit deildarbikarsins, eða frá árinu 1972. Stoke-menn gerðu gott betur það ár og unnu deildarbikarinn en það er líklega stærsti titilinn sem félagið hefur unnið í 152 ára langri sögu þess. Stoke sló West Ham út í undanúrslitunum 1972 og mætti Chelsea í úrslitaleiknum á Wembley.Stoke bar sigurorð af Chelsea í úrslitaleiknum 1972.vísir/gettyMeðal þekktra leikmanna í herbúðum Stoke á þessum tíma má nefna Jimmy Greenhoff, Gordon Banks og George Eastham, en þeir tveir síðastnefndu voru hluti af enska landsliðinu sem varð heimsmeistari á heimavelli 1966. Eastham var hetja Stoke í úrslitaleiknum fyrir 43 árum en hann skoraði sigurmark liðsins á 73. mínútu. Terry Conroy kom Stoke yfir strax á 5. mínútu en Peter Osgood jafnaði metin fyrir Chelsea á lokamínútu fyrri hálfleiks. Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke, telur að liðið geti endurtekið leikinn frá 1972. „Við eigum möguleika gegn hvaða liði sem er í tveggja leikja einvígi,“ sagði Hughes eftir sigurinn á Sheffield Wednesday. Manchester City og Everton komust einnig áfram í gær og í kvöld kemur svo í ljós hvort það verður Liverpool eða Southampton sem tryggir sér síðasta lausa sætið í undanúrslitum deildarbikarsins.Gordon Banks og félagar fögnuðu deildarbikarnum 1972 með stæl.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira