Fótbolti

Ungverjar spila mikilvægan leik á kvöldi sorgardags

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Akos Elek, leikamaður ungverska landsliðsins.
Akos Elek, leikamaður ungverska landsliðsins. Vísir/AFP
Fyrsti leikurinn af átta í umspili um fjögur laus sæti á EM í Frakklandi fer fram í kvöld þegar Norðmenn taka á móti Ungverjum á Ullevaal-leikvanginum í Osló.

Báðar þjóðirnar hafa þurft að bíða lengi eftir að fá að vera með á stórmóti. Norðmenn voru síðast með á Evrópumótinu 2000 en Ungverjar hafa ekki komist á stórmót síðan á HM í Mexíkó 1986.

Ungverjar voru í flottum málum í sínum riðli í undankeppninni en gáfu eftir í lokakaflanum og á endanum voru það úrslit á lokadeginum í riðli Íslands sem réðu því að þeir komust ekki áfram sem liðið með bestan árangur í þriðja sæti.

Þetta er samt mikill sorgardagur fyrir ungverska knattspyrnu en gamli landsliðsmarkvörðurinn Marton Fulop lést í morgun úr krabbameini aðeins 32 ára gamall.

Marton Fulop lék 24 landsleiki fyrir Ungverja á árunum 2005 til 2011 en á þessum árum var hann meðal annars markvörður Sunderland,  Leicester City og Ipswich Town.

Fulop yfirgaf England árið 2012 og fór að leika með Asteras Tripoli í Grikklandi. Hann varð hinsvegar að hætta að spila þegar hann greindist með krabbamein árið 2013.

Ungverskir landsliðsmenn og aðrir tengdir knattspyrnunni í Ungverjalandi hafa minnst Marton Fulop í dag og liðið mun spila með sorgarbönd í leiknum í kvöld.

Leikur Noregs og Ungverjalands hefst klukkan 19.45 í kvöld og hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×