Ungverjar spila mikilvægan leik á kvöldi sorgardags Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2015 16:00 Akos Elek, leikamaður ungverska landsliðsins. Vísir/AFP
Fyrsti leikurinn af átta í umspili um fjögur laus sæti á EM í Frakklandi fer fram í kvöld þegar Norðmenn taka á móti Ungverjum á Ullevaal-leikvanginum í Osló. Báðar þjóðirnar hafa þurft að bíða lengi eftir að fá að vera með á stórmóti. Norðmenn voru síðast með á Evrópumótinu 2000 en Ungverjar hafa ekki komist á stórmót síðan á HM í Mexíkó 1986. Ungverjar voru í flottum málum í sínum riðli í undankeppninni en gáfu eftir í lokakaflanum og á endanum voru það úrslit á lokadeginum í riðli Íslands sem réðu því að þeir komust ekki áfram sem liðið með bestan árangur í þriðja sæti. Þetta er samt mikill sorgardagur fyrir ungverska knattspyrnu en gamli landsliðsmarkvörðurinn Marton Fulop lést í morgun úr krabbameini aðeins 32 ára gamall. Marton Fulop lék 24 landsleiki fyrir Ungverja á árunum 2005 til 2011 en á þessum árum var hann meðal annars markvörður Sunderland, Leicester City og Ipswich Town. Fulop yfirgaf England árið 2012 og fór að leika með Asteras Tripoli í Grikklandi. Hann varð hinsvegar að hætta að spila þegar hann greindist með krabbamein árið 2013. Ungverskir landsliðsmenn og aðrir tengdir knattspyrnunni í Ungverjalandi hafa minnst Marton Fulop í dag og liðið mun spila með sorgarbönd í leiknum í kvöld. Leikur Noregs og Ungverjalands hefst klukkan 19.45 í kvöld og hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira