Fótbolti

Öruggt hjá Ragnari og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Krasnodar hefur haldið hreinu í fimm af 10 deildarleikjum sem Ragnar hefur spilað.
Krasnodar hefur haldið hreinu í fimm af 10 deildarleikjum sem Ragnar hefur spilað. vísir/epa
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í miðri vörn Krasnodar sem vann góðan 0-4 útisigur á Krylya Sovetov í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þetta var annar leikur Ragnars í byrjunarliðinu í röð en lék allan tímann þegar Krasnodar sló Anzhi úr leik í rússnesku bikarkeppninni á fimmtudaginn.

Ragnar hefur alls leikið 10 deildarleiki með Krasnodar á tímabilinu en liðið hefur haldið hreinu í fimm þeirra.

Pavel Mamaev kom Krasnodar í 0-1 á 37. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Í seinni hálfleik bættu leikmenn Krasnodar þremur mörkum við. Fyodor Smolov, Mamaev og Ari skoruðu mörkin.

Með sigrinum komust Ragnar og félagar upp í 6. sæti deildarinnar en liðið er með 21 stig eftir 14 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×