Fótbolti

Van Persie orðaður við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Van Persie fagnar í leik með Man. Utd.
Van Persie fagnar í leik með Man. Utd. vísir/getty
Börsungar eru í vandræðum í sókninni og gætu leitað til Hollendingsins Robin van Persie.

Það eru aðeins þrír framherjar í leikmannahópi Barcelona í dag og þá vantar ódýran mann sem helst býr yfir reynslu. Ef þeir kaupa Van Persie þá yrði hann í svipuðu hlutverki og Henrik Larsson var í er hann kom frá Celtic. Að styðja við og leysa af stjörnur liðsins.

Það eru meiðslavandræði hjá Barcelona þessa stundina og framlínan þunn. Lionel Messi er meiddur og óvissa með Luis Suarez fyrir næsta leik.

Van Persie gærti þó ekki spilað með liðinu fyrr en eftir áramót. Leikmannamarkaðurinn er auðvitað lokaður og svo má Barcelona ekki bæta við sig mönnum fyrr en þá eftir að hafa verið sett í bann á markaðnum.

Van Persie fór til tyrkneska liðsins Fenerbahce frá Man. Utd í sumar og þar hefur honum ekki gengið vel. Hann gæti verið falur fyrir um 2 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×