Ríflega 40 hjúkrunarfræðingar hættir Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. október 2015 14:21 Í sumar sagði 291 hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum upp störfum vegna kjaradeilu þeirra og ríkisins. Eftir að gerðardómur úrskurðaði um kjör hjúkrunarfræðinga í ágúst drógu fjölmargir hjúkrunarfræðingar uppsagnir sínar til baka. vísír/vilhelm
Rúmlega fjörtíu hjúkrunarfræðingar sem sögðu upp störfum í kjaradeilunni við ríkið hafa látið af störfum. Flestir þeirra hættu á miðnætti. Í sumar sagði 291 hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum upp störfum vegna kjaradeilu þeirra og ríkisins. Eftir að gerðardómur úrskurðaði um kjör hjúkrunarfræðinga í ágúst drógu fjölmargir hjúkrunarfræðingar uppsagnir sínar til baka. Það gerðu þó ekki allir og hefur 41 hjúkrunarfræðingur þegar látið af störfum á spítalanum. Þá hafa um þrjátíu hjúkrunarfræðingar til viðbótar ekki dregið uppsagnir sínar til baka. Vonir standa þó til að einhverjir þeirra kunni að gera það þó þær hafi átt að koma til framkvæmda í dag. „Þetta fór nú kannski í við betur heldur en að við höfðum þorað að vona á tímabili en engu að síður að þá eru umtalsverð afföll. Þannig að við erum með staðfest að það eru um 14% af þeim hjúkrunarfræðingum sem sögðu upp að þeir hafa staðið við þær uppsagnir, en við erum ennþá að bíða eftir svona lokaniðurstöðu og þessi tala getur farið alveg upp í 20%,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum. Heilbrigðisstarfsfólk hefur áður gripið til uppsagna í tengslum við kjaradeilur. „Við höfum séð svona stórar uppsagnir áður en við höfum mest séð á eftir á bilinu 5-10% af starfsmönnum í þeim uppsögnum. Þannig að þetta er meira heldur en við höfum séð áður,“ segir Sigríður. Sigríður segir uppsagnirnar dreifast nokkuð jafnt á deildir spítalans. „Miðað við það hvernig uppsagnirnar litu hér út um mitt sumar að þá er þetta náttúrulega miklu betra heldur en á horfðist og þá vorum við líka að horfa til þess að það væru heilu einingarnar sem að væru að hætta, en núna er niðurstaðan í raun og veru sú að uppsagnirnar eru dreifðar á starfseiningar. Þannig að þetta er ekki svona stórfelld ógn fyrir svona afmarkaða þætti starfseminnar,“ segir Sigríður. Tæplega 1.400 hjúkrunarfræðingar hafa starfað á spítalanum síðustu misseri. Áður en til uppsagnanna kom vantaði 100 hjúkrunarfræðinga til starfa á spítalanum og því ljóst að mikið mæðir á þeim sem eftir eru. Sigríður segir að allt verði reynt til að koma í veg fyrir að þjónustan við sjúklingana skerðist vegna uppsagnanna. „Við vonum nú að til þess komi ekki,“ segir Sigríður.
Tengdar fréttir SFR vill sömu launahækkanir og hjúkrunarfræðingar Framkvæmdastjóri félagsins segir félasmenn til í verkfallsaðgerðir og á von á að atkvæðagreiðsla um það fari fram á næstunni. 14. september 2015 13:55 Hjúkrunarfræðingar fella niður dómsmál gegn ríkinu Hæstiréttur sýknaði íslenska ríkið í máli sem BHM höfðaði. Telur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ljóst að dómsmál hefði engu skilað Fíh þar sem málin væru um margt svipuð. 17. ágúst 2015 11:10 Fjármálaráðherra: Ríkið ætlar ekki að taka ábyrgð á höfrungahlaupi launahækkanna Bjarni Benediktsson segir að menn þurfi að ræða saman með breyttu hugarfari og sjá hættumerkin. 3. september 2015 23:44 Meirihluti hjúkrunarfræðinga hefur dregið uppsagnir sínar til baka Enn standa þó uppsagnir 108 hjúkrunarfræðinga. 10. september 2015 18:40 Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Sjá meira
SFR vill sömu launahækkanir og hjúkrunarfræðingar Framkvæmdastjóri félagsins segir félasmenn til í verkfallsaðgerðir og á von á að atkvæðagreiðsla um það fari fram á næstunni. 14. september 2015 13:55
Hjúkrunarfræðingar fella niður dómsmál gegn ríkinu Hæstiréttur sýknaði íslenska ríkið í máli sem BHM höfðaði. Telur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ljóst að dómsmál hefði engu skilað Fíh þar sem málin væru um margt svipuð. 17. ágúst 2015 11:10
Fjármálaráðherra: Ríkið ætlar ekki að taka ábyrgð á höfrungahlaupi launahækkanna Bjarni Benediktsson segir að menn þurfi að ræða saman með breyttu hugarfari og sjá hættumerkin. 3. september 2015 23:44
Meirihluti hjúkrunarfræðinga hefur dregið uppsagnir sínar til baka Enn standa þó uppsagnir 108 hjúkrunarfræðinga. 10. september 2015 18:40