Ólafur Páll: Liverpool er með flottasta framherjaparið í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 22:45
Hjörvar Hafliðason og sérfræðingar hans í Messunni tóku fyrir gengi Liverpool í gær en lærisveinar Brendan Rodgers hafa aðeins náð í samtals tvö stig út úr síðustu fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Hjörvar spurði Þorvald Örlygsson um það hversu heitt sé undir Brendan Rodgers og hvort að hann verði áfram knattspyrnustjóri Liverpool. „Ég hef sagt það frá byrjun að hann þarf úrslit af því að menn voru að velta því fyrir sér hvort að hann yrði áfram eftir síðasta tímabil. Hann er undir pressu núna að það er á hreinu að hann verður að fara að ná í úrslit," sagði Þorvaldur. Danny Ings kom inn á í hálfleik og kom Liverpool í 1-0 á móti Norwich í leiknum á Anfield um síðustu helgi. „Hann gerði þetta frábærlega vel og skoraði gott mark, ekta senteramark," sagði Ólafur Páll Snorrason um mark Danny Ings en hann er ekki viss um að Ings fái mikið af tækifærum þegar Liverpool með með þá Christian Benteke og Daniel Sturridge. „Litlu leikmennirnir sem koma í stóru liðin þeim er oft hent út á kantinn og látnir spila út úr stöðu. Það endar síðan vanalega þannig að þeir standa sig ekki nægilega vel og ná ekki fótfestu. Þess vegna eru þeir oft sendir annað," sagði Ólafur Páll. „Liverpool er ekki að spila illa og þeir fá dauðafæri til að klára þennan leik," sagði Þorvaldur og Ólafur Páll er ánægður með framherjaparið Christian Benteke og Daniel Sturridge. „Með þá saman er Liverpool með flottasta framherjaparið í deildinni en þá verður Sturridge að vera búinn að ná sér af meiðslunum og spila þessa leiki. Ef svo er þá eru þeir að mínu mati flottasta sóknarlínan í deildinni," sagði Ólafur Páll. Það er hægt að sjá alla umræðu þeirra félaga um Liverpool og framtíð liðsins í vetur með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Hætta með maraþonhlaup á HM í frjálsum Sport Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Íslenski boltinn Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti Vinícius Júnior segir mikilvægt að Yamal láti í sér heyra Fótbolti Hljóp heilt maraþonhlaup á göngum skólans síns Sport Sleit hásin í upphitun og missir af HM í fótbolta Fótbolti Fleiri fréttir Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Sjá meira