Segir mál Sóleyjar lýsandi dæmi um stöðuna í borginni Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 27. september 2015 20:00
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að mál sextán ára fjölfatlaðrar stúlku, sem hefur ekki fengið dagvistunarúrræði í Reykjavík síðan hún flutti þangað úr öðru sveitarfélagi fyrir þremur vikum, sé gott dæmi um að velferðarkerfið í Reykjavík brjóti á fötluðum einstaklingum. Fjölskyldur fatlaðra barna rekist oft á veggi hjá borginni. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá því að Sóley, fjölfötluð sextán ára gömul stúlka sem í byrjun mánaðarins flutti til Reykjavíkur úr Reykjanesbæ, fengi hvorki dagvistun né skólavist í Reykjavík. Foreldrar Sóleyjar gerðu ekki ráð fyrir að hún fengi inn í skóla í sveitarfélaginu þar sem skólaárið er hafið, en gengu þó út frá því að hún fengi dagvistun eins og lög gera ráð fyrir að sveitarfélög útvegi fötluðum einstaklingum. Þeim brá því þegar þau fengu svör um að í Reykjavík væri ekki dagvistunarúrræði í boði fyrir sextán til tuttugu ára einstaklinga. Almennt sé gert er ráð fyrir að því að þeir séu í skóla og fari svo í frístundaúrræði á vegum Hins hússins. Sóleyju hefur verið boðið að vera part úr degi í Hinu húsinu til áramóta, en þangað getur hún þó ekki farið fyrr en búið verður að ráða inn starfsmann, sem er óvíst er hvenær verður. Fjölskylda Sóleyjar hefur því skipt því með sér að vera heima með henni. Auk þess sem starfsfólk Rjóðursins, sem er hvíldar og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn og rekin af Landspítalanum, hefur hlaupið undir bagga og tekið á móti Sóleyju í dagvistanir en það er að sögn foreldra hennar algjört neyðarúrræði. Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins þegar eftir því var leitað í dag. Hann vísar því þó á bug að Reykjavíkurborg hafi ekkert aðhafst í málinu. Verið sé að vinna að leiðum og lausnum sem í sumum tilfellum sé flókið úrlausnar og taki tíma. Þá séu oft biðlistar eftir slíkri þjónustu í sveitarfélögum. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í föstudagsviðtalinu fyrir helgi að fjölskyldur fatlaðra barna rekist oft á tíðum á veggi hjá borginni. Hún segir að velferðarkerfið brjóti oft á tíðum á fólki. Reynsla Sóleyjar og fjölskyldu sé ekki einsdæmi. „Ég er hrædd um að þetta sé bara eitt af mörgum dæmum í Reykjavík þar sem verið er að brjóta á fólki. Þjónustan er ekki veitt á forsemdum notenda. Við erum ennþá föst í kerfislægri þjónustu þar sem fólk rekst bara á veggi,“ segir Áslaug. Þjónustan þurfi að vera einstaklingsmiðaðri, en til að fjármagn fáist til þess þurfi að forgangsraða upp á nýtt í borginni. „Mér finnst bara engin spurning um að forgangsraða algjörlega með þennan hóp í huga. Þá sem þurfa þessa grunnþjónustu heim bara til að lifa eðlilegu lífi. En til þess þarf mjög harða fjármálastjórnun og ég er ekki alveg að sjá það gerast í dag,“ segir Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi.
Tengdar fréttir Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00 Fjölfötluð stúlka fær hvorki dagvistun né skólavist í Reykjavík Foreldrar sextán ára fjölfatlaðrar stúlku, sem nýlega flutti til Reykjavíkur úr öðru sveitarfélagi, segja velferðarkerfið í borginni hafa brugðist dóttur sinni, en hún fær þar hvorki dagvistun né skólavist. Þau telja brotið á mannréttindum hennar og ætla í mál við borgina. 26. september 2015 19:15 Áfram deilt um einkavæðingu: Áslaug spyr hvort borgarstjóri sé búinn að gefast upp Áslaug Friðriksdóttir segir það af og frá að hugmyndir hennar um einkavæðingu í velferðarþjónustu borgarinnar gangi út á að takmarka þjónustu. 27. september 2015 11:29 Gagnrýnir hugmyndir Áslaugar: Dagur segir efni ekki eiga að ráða örlögum fólks Borgarstjóri gagnrýnir ummæli Áslaugar Friðriksdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu. 25. september 2015 11:41 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira
Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00
Fjölfötluð stúlka fær hvorki dagvistun né skólavist í Reykjavík Foreldrar sextán ára fjölfatlaðrar stúlku, sem nýlega flutti til Reykjavíkur úr öðru sveitarfélagi, segja velferðarkerfið í borginni hafa brugðist dóttur sinni, en hún fær þar hvorki dagvistun né skólavist. Þau telja brotið á mannréttindum hennar og ætla í mál við borgina. 26. september 2015 19:15
Áfram deilt um einkavæðingu: Áslaug spyr hvort borgarstjóri sé búinn að gefast upp Áslaug Friðriksdóttir segir það af og frá að hugmyndir hennar um einkavæðingu í velferðarþjónustu borgarinnar gangi út á að takmarka þjónustu. 27. september 2015 11:29
Gagnrýnir hugmyndir Áslaugar: Dagur segir efni ekki eiga að ráða örlögum fólks Borgarstjóri gagnrýnir ummæli Áslaugar Friðriksdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu. 25. september 2015 11:41