Aston Villa að ganga frá kaupum á ungstirni frá Barcelona Kristinn Páll Teitsson skrifar 13. ágúst 2015 08:30 Traore í leik með Barcelona. Vísir/Getty
Aston Villa mun að öllum líkindum ganga frá kaupunum á Adama Traore, ungstirni Barcelona, í dag en talið er að Aston Villa greiði allt að 12 milljónir punda fyrir hann. Samkvæmt sömu heimildum hefur hinn 19 árs gamli Traore samþykkt þriggja ára samning hjá Aston Villa. Miklar væntingar voru bundnar við Traore á sínum tíma en hann lék fyrsta leik sinn fyrir Börsunga þegar hann var aðeins 17 ára gamall er hann kom inná fyrir Neymar í 4-0 sigri á Granada á Nou Camp. Þremur dögum síðar lék hann fyrsta leik sinn í Meistaradeild Evrópu þegar hann lék síðustu tíu mínútur leiksins í óvæntu tapi gegn Ajax. Traore skoraði fyrsta mark sitt fyrir aðallið Barcelona í spænska bikarnum á síðasta tímabili en hann hefur aðallega leikið með varaliði Barcelona undanfarin ár. Varalið Barcelona féll hinsvegar úr 2. deild á síðasta tímabili og vill Traore ekki leika í 3. deild spænsku deildarkeppninnar sem gerir það að verkum að hann óskaði þess að hann fengi að fara frá félaginu. Traore gæti leikið fyrsta leik sinn fyrir Aston Villa annað kvöld er liðið tekur á móti Manchester United í fyrsta föstudagsleik tímabilsins. Flautað verður til leiks á Villa Park klukkan 18.45 en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 Sport 2 HD.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira