Ensku liðin þegar búin að eyða 105 milljörðum í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Manchester City þurfti að borga vel til að fá Raheem Sterling. Vísir/Getty
Það eru bara nokkrir dagar í að enska úrvalsdeildin fari aftur af stað og liðin í deildinni hafa verið dugleg að eyða peningum í nýja leikmenn í sumar til að koma sem best undirbúin fyrir nýtt tímabil. Nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn kemur en félagsskiptaglugginn lokar þó ekki fyrr en 1. september. Ensku liðin hafa þegar komist yfir 500 milljónir punda múrinn þrátt fyrir að enn séu fjórar vikur eftir af glugganum og ýmislegt enn í farvatninu ef marka má fréttir enskra fjölmiðla. Ensku liðin eru þannig þegar búin að eyða 105 milljörðum íslenskra króna í leikmenn í sumar og það þarf ekki mörg stórkaup í viðbót svo að þau fari að ógna metinu sem var sett í fyrra. Manchester City hefur eytt mestu í einn leikmenn en liðið borgaði Liverpool 44 milljónir punda fyrir Raheem Sterling. Rob Wilson, sérfræðingur í fjármálum fótboltafélaga, segir í viðtali við BBC að það sé líklegt að metið falli því að liðin treysta á tekjur frá nýjum risa sjónvarpssamningi sem tekur gildi fyrir 2016-17 tímabilið. Nýr sjónvarpssamningur fyrir Meistaradeildina er einnig að auka við tekjurnar sem liðin fá fyrir að komast í hana. Ensku félögin eyddu 965 milljónum punda í báðum gluggunum á síðasta tímabili en Wilson sér fyrir að liðin bæti það með og fari jafnvel yfir milljarðinn á þessu leiktímabili. Nýi sjónvarpssamningurinn er mun hærri en sá gamli eða upp á 5,136 milljarða punda fyrir þrjú ár í staðinn fyrir 3,018 milljarða punda í þeim gamla. Botnlið deildarinnar fær því 99 milljónir punda fyrir árangur sinn en meistararnir fá meira en 150 milljónir punda í verðlaunafé og þá á eftir að bætast við aukapeningur sem liðin fá fyrir að vera í sérstökum sjónvarpsleikjum.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Sjá meira