Lambert kominn til West Brom Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. júlí 2015 17:13 Lambert hefur leikið 11 landsleiki fyrir England og skorað þrjú mörk. vísir/getty
Stuttri dvöl Rickie Lambert hjá Liverpool er lokið en framherjinn er genginn í raðir West Brom. Talið er að kaupverðið sé í kringum þrjár milljónir punda en Lambert skrifaði undir tveggja ára samning við West Brom sem endaði í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. „Rickie er góður, sterkur og traustur leikmaður og er auk þess flottur persónuleiki og sterkur í búningsklefanum,“ sagði Tony Pulis, knattspyrnustjóri West Brom, um nýja leikmanninn sem var úthlutað treyjunúmerinu 17. Lambert gekk til liðs við Liverpool frá Southampton fyrir síðasta tímabil en hann var á mála hjá Bítlaborgarliðinu sem unglingur og dreymdi alltaf um að spila með því. Lambert náði sér ekki á strik með Liverpool í vetur og skoraði aðeins þrjú mörk í 36 leikjum með liðinu. Hann átti hins vegar frábæran tíma hjá Southampton en hann lék með liðinu í fimm ár og skoraði 117 mörk í 235 leikjum fyrir Dýrlingana. Lambert er þriðji leikmaðurinn sem Pulis fær til West Brom í sumar á eftir James McClean og James Chester.NEW SIGNING: We are delighted to announce the arrival of Rickie Lambert from Liverpool http://t.co/x5Q3ahsFJa pic.twitter.com/3BPywKxhpQ— West Bromwich Albion (@WBAFCofficial) July 31, 2015
Enski boltinn Mest lesið Bætti á sig átta kílóum, vann tvöfalt og er á leið út Handbolti Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Enski boltinn Uppgjörið: KA - Afturelding 1-0 | KA af botninum Íslenski boltinn Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Enski boltinn Sjáðu neglur Arons og ótrúlegt skallamark þess sænska Íslenski boltinn Matic reyndist sannspár með söluna á McTominay Fótbolti Leik lokið: Víkingur - ÍA 2-1 | Víkingar tylltu sér á toppinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Stjarnan 1-0 | Mark Söndru Maríu skildi á milli Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍBV 3-0 | Valsmenn gengu frá Eyjamönnum í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Vildi ekki skipta um lið bara til þess eins að skipta um lið Handbolti Fleiri fréttir Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Sjá meira