Enski boltinn

Van Gaal ánægður með framherjastöðuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney. Vísir/Getty
Louis van Gaal hefur ekki áhyggjur af framherjastöðunni hjá Manchester United eftir að þeir Robin van Persie og Falcao fóru frá félaginu.

Fastlega má reikna með því að Wayne Rooney verði í aðalhlutverki í sóknarlínu United en einu framherjarnir sem eftir eru í hópi United auk hans eru Javier Hernandez og James Wilson.

„Ég hef ekki áhyggjur af því hversu breiðan hóp framherja við erum með. Við erum enn með Rooney sem getur spilað í þessari stöðu. Fjölmiðlar sögðu á síðasta tímabili að hann yrði að spila í þessari stöðu. Ég hlusta á fjölmiðla,“ sagði Van Gaal.

„Við erum líka með Hernandez, Wilson og kannski bætist eitthvað óvænt við. Það er aldrei að vita,“ bætti Hollendingurinn við.

Memphis Depay gæti einnig verið notaður sem framherji hjá United en hann kom til félagsins frá PSV Eindhoven í sumar.

Rooney skoraði 34 mörk síðast þegar hann var notaður sem aðalframherji liðsins en það var tímabilið 2009-10. Hann hefur engu að síður verið markahæsti leikmaður United síðustu tvö tímabil (14 og 17 mörk).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×