Enski boltinn

Balotelli glaður fyrir hönd Sterling

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Raheem Sterling í leiknum fyrr í dag.
Raheem Sterling í leiknum fyrr í dag. Vísir/Getty
Mario Balotelli, framherji Liverpool, óskaði Raheem Sterling, fyrrum liðsfélaga sínum hjá Liverpool og núverandi leikmanni Manchester City til hamingju með fyrsta mark sitt fyrir nýja félagið í dag.

Sterling sem gekk til liðs við Manchester City á dögunum frá Liverpool var í fyrsta sinn í byrjunarliði Manchester City í dag og skoraði eftir rúmlega tveggja mínútna leik í Melbourne.

Ólíkt stuðningsmönnum Liverpool sem voru alls ekki sáttir með framkomu Sterling virðist Balotelli vera ánægður að sjá fyrrum liðsfélaga sinn skora sitt fyrsta mark en hann skrifaði á Twitter: „Vel gert Raheem. Þetta er besta leiðin til að svara, haltu þessu áfram.“

Balotelli útskýrði færslu sína örlítið seinna en hann sagðist einfaldlega vera glaður að sjá góðan vin sinn skora en færslur hans má sjá hér fyrir neðan.

„Stuðningsmenn Liverpool eru ótrúlegir en ég vona að honum gangi vel því hann á það skilið. Hann er góður strákur með mikla hæfileika og við eigum að hvetja hann áfram. Hann gaf allt sem hann átti fyrir þetta félag og fólk ætti að virða það. Það hryggir mig að sjá viðbrögðin við þessu. YNWA Liverpool er fjölskyldufélag að eilífu.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×