Enski boltinn

Benteke: Liverpool er rétta félagið fyrir mig

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Christian Benteke glaðbeittur í rauðu treyjunni.
Christian Benteke glaðbeittur í rauðu treyjunni. vísir/getty
Belgíski framherjinn Christian Benteke samdi við Liverpool í kvöld, en hann er næst dýrasti leikmaðurinn í sögu Liverpool. Hann kostaði 32,5 milljónir punda.

Liverpool þurfti að borga riftunarverð kappans hjá Aston Villa til að fá hann því Villa var eðlilega ekki tilbúið til að selja hann fyrir lægri upphæð.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og ég vil þakka eigendunum, Ian Ayre og auðvitað knattspyrnustjóranum fyrir að leggja allt á sig til að fá mig hingað,“ segir Benteke í viðtali á heimasíðu Liverpool.

„Þetta er rétta félagið fyrir mig. Ég talaði við stjórann og mig langar að vera hluti af þessu verkefni.“

„Það var alltaf frábært að spila á Anfield með Aston Villa og nú fæ ég að spila í Liverpool-treyjunni sem er virkilega spennandi tilfinning.“

Benteke segist þekkja sögu Liverpool og stærð félagsins. Hann vill nú hjálpa því að komast aftur í fremstu röð.

„Hér eru gæðaleikmenn og mörg stór nöfn. Ég er ánægður með að vera hluti af þessu liði og vill hjálpa því að ná markmiðum sínum,“ segir Christian Benteke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×