Sést kasta tveggja ára drengnum um hoppukastala Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. júlí 2015 13:34 Á myndbandinu sést hvernig drengurinn lendir harkalega svo að háls hans sveiflaðist til. Vísir
Myndskeið hefur litið dagsins ljós þar sem sjá má Courtney Stewart, sem rataði í fréttirnar fyrr í vikunni fyrir að setja tveggja ára dreng með Downs-heilkenni inni í þvottavél, kasta téðum dreng um hoppukastala. Rétt er að vara við myndbandinu sem má sjá hér að neðan. Hin 21 árs gamla Stewart sést sleppa drengnum á bakið í hoppukastalanum úr töluverðri hæð þannig að höfuð hans kastast aftur. Þegar sá tveggja ára reynir að skríða í burtu grípur Stewart í fót hans og dregur hann um gólf kastalans. Myndbandið kom fram á sjónarsviðið eftir að konan var tilkynnt til lögreglu fyrir að hafa birt mynd af tveggja ára drengnum í þvottavél þar sem hún hélt hurði vélarinnar lokaðri. Það er tekið í maí síðastliðnum. Sá sem veldur myndavélinni í myndbandinu sagði í samtali við The Daily Record að það hafi verið erfitt að horfa upp á framgöngu konunnar. Hún hafi kastað drengnum úr axlarhæð og þegar hann lenti hafi heyrst óhugnanlegt hljóð. „Þá skríður hann í burtu áður en hún grípur í ökklann á honum. Það var ótrúlegt að horfa á hann dreginn á ökklanum svona. Litli drengurinn hefði getað slasast við lendinguna ef marka má hvernig hálsinn á honum sveiflast til. Eitthvað verður að gera í þessu.“ Það voru nágrannar konunnar í bænum Erskine í Skotlandi sem tilkynntu fyrst um meðferð Stewart á drengnum í tengslum við myndbirtingar hennar á Facebook. Tveir lögreglumenn komu á heimili hennar og var henni sleppt að loknum yfirheyrslum. Hún hefur ekki verið kærð fyrir athæfið en síðan þá hefur verið ráðist á Courtney Stewart á götum úti.
Tengdar fréttir Setti tveggja ára dreng með Downs í þvottavél Mikil reiði er vegna málsins í Skotlandi en móðirin, semsetti mynd af því á Facebook, segir hana hafa verið tekna í gríni. 22. júlí 2015 11:07 Mest lesið Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Sjá meira
Setti tveggja ára dreng með Downs í þvottavél Mikil reiði er vegna málsins í Skotlandi en móðirin, semsetti mynd af því á Facebook, segir hana hafa verið tekna í gríni. 22. júlí 2015 11:07