Setti tveggja ára dreng með Downs í þvottavél Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2015 11:07 Á myndinni sést hvernig einhver heldur aftur hurð þvottavélarinnar meðan drengurinn er í vélinni. mynd/facebook
Lögreglunni í Skotlandi var tilkynnt um móður sem hafði sett dreng í þvottavél „í gríni“ en hann er tveggja ára og með Downs-heilkenni. Hin 21 árs gamla Courtney Stewart setti mynd á Facebook þar sem sjá má hönd einhvers fullorðins halda hurð þvottavélarinnar lokaðri og drenginn inni í vélinni. Við myndina skrifaði Stewart að strákurinn, sem var í umsjá hennar þegar myndin var tekin, „elskaði þvottavélar“ og að „þau hafi tekið myndina og skemmt sér vel.“ Það voru nágrannar stúlkunnar í bænum Erskine sem tilkynntu um málið til lögreglu enda stóð þeim ekki á sama um velferð drengsins. „Það var hræðilegt að horfa upp á þetta,“ er haft eftir einum nágrannanna í the Daily Record.Facebook-færsla frá Stewart í kjölfar myndbirtingarinnar.mynd/facebook„Það að einhver, sem er foreldri í þokkabót, setji svona mynd á Facebook í gríni er ótrúlegt. Það er ekki nema von að fólk sé reitt yfir þessu. Fólk í bænum hefur rætt þetta sín á milli því hver sá sem hefur séð myndina hefur fengið áfall,“ sagði nágranninn ennfremur. Að sögn Stewart fór drengurinn sjálfur inn í þvottavélina og sagði það „algjörlega fáránlegt“ að einhverjir tilkynntu hana til lögreglu. „Hann er greinilega að hlæja á myndunum. Hvað hélt fólk að ég væri að gera? Sippa honum í snúning?,“ sagði Stewart. „Hann er með smá áráttu fyrir þvottavélum. Allir sem þekkja drenginn vita að hann er með áráttu fyrir þvottavélum.“ Tveir lögreglumenn komu á heimili hennar og var henni sleppt að loknum yfirheyrslum. Hún hefur ekki verið kærð fyrir athæfið en síðan þá hefur verið ráðist á Courtney Stewart á götum úti.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Fleiri fréttir Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Sjá meira