Chelsea hafði betur í vítaspyrnukeppni gegn Barcelona | Sjáðu mörkin og vítaspyrnukeppnina Kristinn Páll Teitsson skrifar 29. júlí 2015 09:15
Ensku meistaranrir í Chelsea höfðu betur gegn spænska stórveldinu Barcelona í æfingarleik liðanna í nótt sem fór fram í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington. Var þetta annnar leikurinn í röð sem Chelsea vinnur í vítaspyrnukeppni en mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir ofan og vítaspyrnunukeppnina neðst í fréttinni. Bæði lið stilltu upp nokkuð sterkum byrjunarliðum en í lið Barcelona vantaði þó stjörnurnar Lionel Messi og Neymar. Brasilíski miðjumaðurinn Kenedy fékk tækifæri í liði Chelsea en Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea stillti upp Kourt Zouma í stað Johns Terry. Fyrsta mark leiksins var í glæsilegri kantinum en þar var að verki belgíski snillingurinn Eden Hazard eftir glæsilegan einleik. Fékk hann boltann á miðjum vallarhelming Barcelona, lék á varnarmenn liðsins og lagði boltann í netið framhjá Marc Ter-Stegen í markinu. Staðan var 1-0 fyrir Chelsea í hálfleik en í upphafi seinni hálfleiks náðu Börsungar að snúa taflinu við sér í hag. Luis Suárez skoraði með snyrtilegri vippu yfir Thibaut Courtois. Sandro bætti við öðru marki Barcelona tíu mínútum seinna og skyndilega voru spænsku meistararnir komnir yfir. Þessu var þó ekki lokið því Gary Cahill náði að jafna metin stuttu fyrir leikslok fyrir Chelsea. Skallaði hann framhjá Joel Masip í marki Barcelona eftir skrautlega skógarferð markmannsins og í autt netið. Þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem ensku meistarnir höfðu betur. Brenndu Alen Halilovic og Gerard Pique af en Falcao, Moses, Ramires og Remy nýttu allir vítaspyrnur sínar fyrir Chelsea. Eiga bæði liðin eftir einn leik á mótinu gegn Fiorentina en fara leikirnir fram í Evrópu.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Sjá meira