Enski boltinn

Henderson tekur við fyrirliðabandinu hjá Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Henderson er nýr fyrirliði Liverpool.
Henderson er nýr fyrirliði Liverpool. vísir/getty
Liverpool hefur staðfest að Jordan Henderson verði næsti fyrirliði liðsins.

Henderson tekur við fyrirliðabandinu af Steven Gerrard sem er farinn til Los Angeles Galaxy eftir að hafa leikið með Liverpool allan sinn feril.

„Ég er afskaplega ánægður og stoltur. Þetta er mikill heiður og forréttindi að vera útnefndur fyrirliði liðsins,“ sagði Henderson í samtali við heimasíðu Liverpool en hann var varafyrirliði liðsins á síðasta tímabili.

„Ég reyndi að gera mitt besta þegar ég var með bandið í fyrra í fjarveru Stevens og ég mun leitast við að halda því áfram og vaxa sem fyrirliði.“

Henderson kom til Liverpool frá Sunderland árið 2011 og hefur síðan þá verið fastamaður í liðinu. Hann skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Liverpool í apríl.

Henderson, sem er 25 ára, hefur leikið 22 landsleiki fyrir England.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×