Enski boltinn

Sterling fer ekki með Liverpool til Asíu

Allt virðist benda til að Raheem Sterling sé á leið til Manchester City.
Allt virðist benda til að Raheem Sterling sé á leið til Manchester City. vísir/getty
Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla hefur Raheem Sterling kvatt félaga sína í Liverpool og mun ekki fara með liðinu í æfingaferð til Asíu.

Talið er að Manchester City hafi lagt fram þriðja tilboð sitt í leikmanninn upp á 45 milljónir punda, eða sem nemur rúmum 9 milljörðum króna.

Því var haldið fram að Liverpool hafi verið að sækjast eftir því að fá 10 milljarða króna fyrir Sterling en Manchester City gerir sér vonir um að fregnir af ósætti milli leikmannsins og Brendan Rodgers geri City kleift að spara sér eins og einn milljarð eða svo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×